157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:17]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar seinna andsvar og mjög málefnalegar og góðar spurningar. Ég held að það sé ekkert endilega mitt að vera ósammála þessari spurningu því að sveitarfélögin eru búin að gera þennan áætlaða viðbótarkostnað, sem er náttúrlega það sem við vorum að ræða um hér og sérstaklega varðandi búsetuúrræðin, eins og hv. þingmaður nefnir. Mér finnst bara svolítið skrýtið að ætla að fara að keyra þetta í gegn sem eitthvert pressufrumvarp. Það hljómar ekkert rosalega vel og er þá líka akkúrat andstætt því sem ég var að segja. Það væri mjög skrýtið fyrir mig að fara að segja að það væri góð hugmynd af því að ég vil frekar að það liggi fyrir meiri kostnaðargreining og að sveitarfélögin fái að vera með bæði augun opin á þessu þegar þetta kemur inn, því að það eru erfiðleikar víðs vegar um land í öllum sveitarfélögum. Og fatlað fólk er nú sem betur fer alls staðar um landið og við erum að reyna að búa vel í haginn fyrir þau öll, að sjálfsögðu. Þannig að nei, ég vil frekar að við höfum bara fjögur augu opin, þ.e. bæði ríki og bær og sveit, og reynum að hafa þetta þannig að þetta verði unnið í sameiningu og það verði gerð meiri þarfagreining.

Enn og aftur vil ég koma því á framfæri að meginmarkmiðið styð ég. En ég held að það sé allt í góðu að fara með þetta eitthvað aðeins aftur inn í nefnd því að það er búið að vinna mjög góða vinnu hingað til og ég held að vanti ekki mikið upp á að þessi annars ljómandi vel mannaða velferðarnefnd geti komið með þetta aðeins betra á borðið og þá sé hægt að ganga frá þessu og allir verði himinsælir og gangi út sem vinir.