samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ræðu hérna. Við erum að ræða gríðarlega mikilvægt mál. Við erum að ræða lögfestingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur nú verið svolítið lengi á leiðinni inn í þennan þingsal til afgreiðslu. Eins og komið hefur fram hérna í dag hefur samningurinn verið fullgiltur og það var gert fyrir nokkrum árum síðan. Ég veit til þess að fyrri ríkisstjórn hafði svo sem ætlað sér að lögfesta hann og sett frumvarp um það í samráðsgátt sem fór hins vegar ekki alla leið. Kannski gafst ekki tími til þess, ég veit það ekki. En þetta er hins vegar gríðarlega mikilvægt mál og ég held að það skipti máli, eins og hefur komið fram, að skrefið verði stigið alla leið. Það er ekki verið að innleiða einhver ný réttindi í þessu heldur er verið að taka á þeim atriðum sem þarna eru og styrkja stoð og réttindi fólksins fyrir lögum. Það er auðvitað það sem er verið að fjalla um.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann: Telur hv. þingmaður góðan brag á því að fullgilda samning án þess að í raun og veru að tryggja fulla þjónustu, sem samningurinn felur í sér, ef það er mat þingmannsins að það sé ekki búið að tryggja fulla þjónustu?