157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:40]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf):

Herra forseti. Ég er komin til að loka þessu máli, ef það má orða það svo. Hér er búin að vera aldeilis mikil og djúp umræða. Ef ég fæ aðeins að lýsa minni líðan hefur umræðan verið að mörgu leyti ágæt og málefnaleg en þó mismálefnaleg finnst mér. Mér finnst hún á köflum hafa verið ansi harðneskjuleg og jafnvel farið örlítið offari. Ég vil samt þakka þeim sem hafa virkilega verið málefnaleg. Maður finnur muninn, það er tónamunur milli þessara þriggja flokka í minni hlutanum, stjórnarandstöðunni, sem hafa komið hingað upp og tekið slaginn á gagnrýnina sem hefur verið mjög mikil, reyndar frekar áþekk samt. Það er líka svo einkennilegt að heyra að öll eru þau sammála og með málinu og hafa jafnvel sagt að þau styðji málið og samþykki það. Það hefur verið notað, þau styðja málið, þau samþykkja málið en samt eru þau algjörlega á móti því og það kemur þá niður á aðallega eitt; að það vanti fleiri greiningar eða bara greiningar og möt. En hvenær er það nóg? Hvenær er það tæmt? Hvenær er þessum hluta fullnægt? Ég fékk það á tilfinninguna í dag að þó að það væru greiningar og möt í metratali myndi samt sem áður vera kallað eftir frekari greiningum og mati. Nú er ég bara að lýsa mér og minni upplifun hér í dag en það er spurning hvort þetta sé sagt vegna þess að í grunninn eru mögulega einhverjir hérna sem hafa komið upp í dag bara algerlega á móti því að þessi samningur verði nokkurn tíma lögfestur, nokkurn tímann, og þá skipti í rauninni engu máli hversu mikið liggur fyrir af alls konar útreikningum og greiningum. Ég veit það ekki, þetta er búið að vera svo mikið og lengi en auðvitað erfitt fyrir mig að fullyrða nokkuð.

Ég er að fara í gegnum þetta núna í annað sinn á stuttum tíma og við nokkur hérna en þeir sem eru nýir eru að upplifa og fara í gegnum það í fyrsta sinn. En það kemur í mann örlítil, ég vil ekki segja þreyta en þegar þú ert búin að heyra það sama aftur og aftur, að það vanti greiningar og mat og hvað þetta kosti nú, þá kemur þessi tilfinning: Hvað ef það væri bara einhver tala hérna, þetta kosti svona, myndi þá allt detta í dúnalogn og allir yrðu með á samningnum? Ég veit það ekki, en ég hef aðeins orðið fyrir vonbrigðum.

Ég vil samt segja að mér fannst t.d. álit 2. minni hluta frekar ljúft. Þar kemur einmitt fram strax í upphafi að það er stuðningur við þetta frumvarp en síðan kemur samt að það þurfi þarna breytingartillögu til og henni er lýst í lokin. Hún er samt sem áður ekki bara: Meiri greiningar, meiri greiningar. Hún er aðeins annars eðlis, þannig að ég vil þakka sérstaklega fyrir þetta álit. Mér fannst notalegra að lesa það en hið fyrra, sem var bara þetta sama: Meiri greiningar, meiri greiningar. Það er svolítið fyndið að þessir þrír flokkar séu sammála um hvað sé að en þó er það mismunandi. Það að segja að þetta verði ekki réttarbót, ég vil ekki nafngreina þann hv. þingmann sem sagði það og kannski man það ekki alveg en það kom hér örugglega fram að þetta væri engin réttarbót og að þetta myndi mögulega ekki gera neitt sérstakt gagn fyrir þennan hóp. Við í meiri hlutanum og ríkisstjórninni erum náttúrlega algjörlega ósammála því. Við erum þess fullviss að hér sé um gríðarlega mikla réttarbót að ræða, þótt það væri ekki nema það að vera búin að taka þennan mikilvæga samning og greinar hans alla leið. Ég ætla ekki að nefna hvað ég held að þetta sé líka mikið aðhald fyrir okkur öll, stjórnvaldið hér, ríkið, ríkisstjórnina og sveitarfélögin. Þetta skiptir svo gríðarlega miklu máli.

Ég vil líka benda á umsagnirnar. Þær voru, eins og við vitum sem höfum setið í hv. nefndinni, svona helmingur og helmingur. Það var auðvitað alveg sitthvor póllinn, það var þessi sem vildi greiningarnar og það en síðan hópurinn sem fagnaði þessu gríðarlega og er búinn að bíða eftir þessu og getur ekki hugsað sér annað en að þetta verði að veruleika. Við vorum með svona helming á móti helmingi og alveg á sitthvorum endanum. Það er því ekki hægt að segja að til okkar hafi hópast fólk sem var allt á einn veginn í skoðun. Mér finnst við líka þurfa að taka svolítið tillit til þess að þetta er ekki allt svona hrikalega slæmt eins og hér hefur verið lýst síðustu tvo tímana.

Ég vil aðeins koma inn á hvernig þessu var lýst hérna. Ég er kannski óvenju viðkvæm í mér og meyr, það getur verið aldurinn og einhver þreyta. En það að segja að við séum að gefa út gúmmítékka og við séum að hafa samninginn í flimtingum fannst mér pínulítill óþarfi. Ég man ekki einu sinni hver nákvæmlega sagði þetta en þarna erum við komin út í svolítið skrýtna hluti. Ef ég væri þarna hinum megin og væri einstaklingur með fötlun sem væri mögulega búinn að bíða spenntur eftir að þetta raungerðist þá held ég að mér þætti frekar leiðinlegt að það væri sagt að ríkisstjórnin hefði þennan samning í flimtingum. Mér finnst það aðeins of langt gengið og líka að segja að hér sé um pressufrumvarp að ræða sem sé keyrt í gegn og hvort við höldum að þegar við séum búin að lögfesta samninginn þá verði allt bara frábært og búið, ekkert meir. Þetta er auðvitað ekki þannig. Ég vil aftur benda á nefndarálitið. Ég ætla ekki að leggja það á okkur að fara í gegnum það aftur en það er svolítið eins og það hafi ekki náð eyrum sumra hérna, bara alls ekki neitt. Þar er einmitt verið að tala um hvernig búið er að fara í gegnum hverja grein, það er búið að gera heilmiklar breytingar á ákveðnum lagaákvæðum og síðan verður þessi stýrihópur um húsnæðismálin o.fl. Það er virkilega búið að vera að hugsa þetta en af því að það er ekki einhver verðmiði þá er þetta nánast allt ónýtt. Það eru þessir öfgafullu pólar hér sem ég furða mig á og þótti smá sárt og leitt að heyra.

Ég vil segja það fyrir hönd okkar allra og ríkisstjórnarinnar varðandi það að ef lögleiðing samningsins leiðir til óvæntra útgjalda, og ég hef reynt að útskýra það í minni ræðu fyrr í dag, þá ber ríkisstjórnin ábyrgð á þessu máli og auðvitað berum við ábyrgð á öllu sem við segjum og gerum. Hér er ríkisstjórnin að leggja fram mál sem er eitt af grunnmálum og meðal fyrstu mála sem komu frá ríkisstjórninni og var alveg 100% samþykki um. Haldið þið virkilega að ef eitthvað kæmi upp á og sveitarstjórnir, Reykjavík og fleiri, myndu kalla: Heyrðu, hér kom eitthvað óvænt, hér er aukakostnaður, þá myndum við bara snúa bakinu við sveitarstjórnum? Ég hef fylgst með pólitík lengi og verið nokkur árin í henni og það er engin ríkisstjórn sem hefur unnið eins vel með sveitarfélögum og þessi ríkisstjórn. Nú þegar á þessum stutta tíma eru þessir tveir pólar, þessi tvö stjórnstig búin að koma sér saman um gríðarlega stóra og mikilvæga hluti sem við öll vitum hverjir eru. Hvernig dettur einhverjum í hug að halda að ríkisstjórnin muni snúa baki við óvæntum útgjöldum sem kunna að leiða af lögfestingu þessa samnings?

Grundvallaratriðið er að réttarstaða fatlaðs fólks verði tryggð með lögfestingu samningsins. Ég vil nefna Noreg sem er í sömu sporum núna, u.þ.b. að fara að stíga þetta skref eftir því sem ég kemst næst og hef lesið mér til um. Það er ekki Kúba, ef einhverjum fannst sú þjóð eða land ekki nógu nærri okkur til að bera okkur saman við, og þá hljótum við að vilja viðurkenna að Noregur er land sem við gjarnan berum okkur saman við. Við erum að stíga þetta skref og Noregur og ég held að það sé gott fordæmi fyrir aðrar þjóðir sem við viljum bera okkur saman við og fleiri, jafnvel þær sem við erum ekki að bera okkur saman við. Það væri nú guðs blessun ef þær þjóðir sem eru kannski ekki einu sinni með mannréttindi á þessum stað tækju þetta skref.

Svona erum við búin að fara fram og til baka; hvað mannréttindi kosta, sem enginn getur svarað, og að barnasáttmálinn sé ekki sambærilegur sem ég held að sé bara túlkunaratriði. Ég er ekkert viss um að allir séu endilega sammála um að barnasáttmálinn og allt það ferli sé engan veginn sambærilegt. Ég myndi bara vilja sjá það gerast að þessir allir kvittuðu upp á það. Mér finnst þetta tal ekki vera að hjálpa.

Ríkisstjórnin er ákveðin í að klára þetta mál og nú er það bara þannig, og þeir sem hafa verið hér í meiri hluta í mörg ár þekkja hvernig kaupin á eyrinni gerast á Alþingi, að það er meiri hluti og stjórnarandstaða og við munum standa föst og keik með þetta og stolt. Sannarlega er ekki bara allt búið þegar búið er að lögfesta samninginn en þið sem eruð með stærstu og mestu úrtölurnar og mesta kvíðann verðið bara að trúa því og treysta að við séum fólk sem stöndum við okkar verk og tökum fulla ábyrgð og gerum það aldeilis stolt og ánægð.