157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:52]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir sína síðari ræðu hér en mér fannst samt nauðsynlegt að bregðast við henni til að árétta nokkur atriði og hreinlega leiðrétta. Eins og hefur svo sem komið fram í máli mínu og kemur fram í álitinu erum við fylgjandi samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það er enginn á móti því að auka og tryggja réttindi og mannréttindi fatlaðs fólks. Hins vegar sætir verklagið og aðferðafræðin hér gagnrýni og það er alltaf þetta sama. Ástæðan held ég því miður að sé misskilningur á eðli samningsins og hreinlega hvað í því felst að lögfesta hann. Samningurinn hefur verið fullgiltur hér á landi. Af því leiða skyldur íslenskra stjórnvalda til að koma þeim réttindum og þeim skuldbindingum inn í íslenskan rétt þannig að borgararnir geti byggt á þeim. Um það er mælt í 4. gr. samningsins sjálfs. Hér er verið að fullgilda eða lögfesta samninginn sjálfan með því að taka hann einfaldlega upp en það er látið hjá líða að efna sjálfa skuldbindingu samningsins og aðlaga íslenskan rétt að þeim skuldbindingum sem samningurinn mælir fyrir um. Því vil ég nota tækifærið og segja tvennt: Í fyrsta lagi er það auðvitað ófullnægjandi að halda því fram að ríkisstjórnin beri ábyrgð á málinu þegar reikningurinn mun falla á sveitarfélögin að öllu óbreyttu. Ég vil nota tækifærið hér í lok ræðu minnar og spyrja hv. þingmann og fá það alveg skýrt: Hver er þá tilgangur lögfestingar núna ef þetta á ekki að hafa nein áhrif á réttindi borgaranna og þetta á ekki að kosta krónu og það þarf ekki að breyta neinum áætlunum eða þróa þjónustu?