samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Mig langaði að enda hérna á rólegum og góðum nótum. Ég er svo sem alveg róleg en ég veit ekki hvort ég verð á góðum nótum. Mér finnst þetta pínu klént. Mér finnst ekki ganga að hefja allar ræður á að segja að hér sé stuðningur við málið, fólk sé sammála, en leggjast síðan gegn því af afli og spyrja hver tilgangurinn sé.
Ég vil bara nefna áhrif dómaframkvæmda. Göfug markmið hjálpa ekki einstaklingi með fötlun fyrir dómstólum; að segja að margir í ríkisstjórninni og á Alþingi séu virkilega sammála þessu en leggist samt gegn samningnum. Hvað hjálpar það að hafa göfug markmið sem stjórnmálamaður en vilja ekki kvitta upp á að þetta nái fram að ganga eins og fyrir bara dómaframkvæmd? Ég ætla að vísa í dóm Hæstaréttar nr. 80/2016 þar sem tekið er fram að þar sem samningurinn hefði ekki verið lögfestur hér á landi gæti hann ekki aukið skyldur stjórnvalda umfram það sem fram kemur í lögum nema hann verði lögfestur.
Hvað hjálpar það þessum einstaklingi að vita af því að alþingismenn upp til hópa hafi samt alveg gríðarlega göfug markmið í þessa átt? Það hjálpar ekki neitt. Við verðum að stíga þetta skref og taka þessa ábyrgð og standa í lappirnar en ekki bara tala um að við séum með göfug markmið en ætlum samt ekki að samþykkja þetta þótt við séum sammála þessu. Þetta er náttúrlega engin hemja, að segja þetta. Ég verð bara að segja, herra forseti, að það er eiginlega búið að vera nóg af svona tali hér í dag og mál að linni.