samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Örstutt viðbrögð í tilefni af þessu innleggi hv. þingmanns. Í fyrsta lagi verðum við bara að halda því til haga að í nefndaráliti annars meiri hluta er lagt til að frumvarpið verði samþykkt með ákveðnum breytingartillögum. Það er rangt hjá hv. þingmanni að sá sem hér talar sé með einhverjum hætti á móti þessu frumvarpi. Ég krefst þess hins vegar, og hef gert, að það sé unnið almennilega. Ég geri það ekki til að vera leiðinlegur gagnvart þessum meiri hluta hér á þinginu eða hv. þingmanni, alls ekki. Ég geri það vegna þess að mér er annt um þessi réttindi. Það sætir þá bara álíka furðu hjá mér að hlusta á hv. þingmann tala til að mynda um dómaframkvæmd Hæstaréttar. Ég náði nú ekki málsnúmerinu sem hv. þingmaður vísaði til en það kæmi mér ekki á óvart að ég hefði nú bara flutt nákvæmlega þetta mál. Ég hef flutt þau nokkur um réttindi fatlaðs fólks og um þennan samning, um stöðu hans í íslenskum lögum o.s.frv. Það er til einskis að ætla minni hlutanum að vera með einhverja neikvæða afstöðu eða annarlegar hvatir að baki þeim málflutningi að við einfaldlega vöndum okkur, gerum það sem samningurinn krefst af okkur, sem er að aðlaga innlendan rétt að þeim réttindum sem mælt er fyrir í samningnum sjálfum. Ég er þeirrar skoðunar að þar þurfi að gera meira. Ég hef kallað eftir því, og því miður ekki fengið almennilegan stuðning í velferðarnefndinni, að fá upplýsingar um raunverulega stöðu. Það væri kannski áhugavert að heyra frá hv. þingmanni um þetta minnisblað velferðarráðuneytisins sem barst nefndinni 17. október síðastliðinn og geymdi einhvers konar yfirlit yfir ákvæði samningsins en engar upplýsingar um hverju þurfi að breyta í íslenskum lögum.