157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar og rifja það aftur upp að í fyrri ræðu minni hér — ég man ekki hvort það var í andsvari eða ræðu en ég talaði fallega um nefndarálit hv. þingmanns og annars þingmanns úr hans flokki. Það voru tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem skrifuðu undir nefndarálitið og mér fannst það bara gott álit. Það var alveg þess virði að lesa þá breytingartillögu sem lögð var til, svo ég segi það. Ég verð nú bara að rifja það aðeins upp. Það sem ég vildi þó segja er að mér finnst það skjóta skökku við að hafa öll þessi göfugu markmið og vera sammála og samþykkja en síðan leggjast alfarið gegn því og svo koma aftur og segja að það vanti greiningar. Ég hvet hv. þingmann til að lesa aftur minnisblaðið frá 17. október 2025 og fara betur í gegnum það. Auðvitað er kannski ekki hægt að svara öllum spurningum en það er bara býsna ágætt, svo ég minnist nú bara aftur á þennan stýrihóp um húsnæðismálin, sem mér fannst afskaplega gott að sjá, og landsáætlunina. Þarna er ýmislegt sem getur gefið okkur vissu um að það verði vel haldið á spilunum. En að lokum, því að ég hef nú ekki mikinn tíma eftir hérna í seinna svari, þá er dómur Hæstaréttar nr. 80/2016 og það væri nú alveg dásamlegt ef hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson hefði flutt þetta mál og að þetta séu mögulega — hann á eftir að athuga það — hans orð þar sem sagt er að þar sem samningurinn hefði ekki verið lögfestur hér á landi gæti hann ekki aukið skyldur stjórnvalda umfram það sem fram kemur í lögum nema hann hafi verið lögfestur.

Nú hlakka ég til að vita hvort þetta séu mögulega orð hv. þingmanns. Ég vil bara þakka fyrir þessa umræðu í dag. Eins og ég segi var hún alls konar (Forseti hringir.) en það styttist í að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur hér á hinu háa Alþingi.