fjöleignarhús.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsögu sína og samstarfið í velferðarnefnd þar sem við ræddum m.a. þetta mál sem er frábrugðið ýmsum öðrum sem eru hér til umfjöllunar vegna þess að það er svona það sem kannski kallast þverpólitískt. Ég geri síður ráð fyrir því að atkvæðagreiðsla í þingsal, þegar að henni kemur, verði algerlega eftir flokkslínum. Þætti mér bara nokkuð einkennilegt ef svo yrði, vegna þess að þetta er ekki eitthvert klassískt hægri eða vinstri mál heldur allt annars eðlis. Því treysti ég því að þingmenn vinni að þessu máli eftir sinni eigin sannfæringu. Ég geld varhug við þessu máli. Ég tek undir með hv. þingmanni að það þarf auðvitað að ræða um þetta af virðingu af því að þetta snertir alls konar hagsmuni alls konar fólks. Það eru viðkvæmir hópar sem geta ekki eða treysta sér ekki til að búa með dýrum. Svo eru auðvitað aðrir hópar sem þurfa á nærveru og félagsskap svona gæludýra að halda. Ég ber alveg virðingu fyrir þessu og þess vegna held ég að það hefði mátt athuga það hvort hægt væri að liðka eitthvað fyrir þessum reglum í innlendri löggjöf. En hér er gengið miklu lengra en þörf er á. Það er gengið lengra en gert er á Norðurlöndunum og það er ekki hlustað á neinar gagnrýnisraddir, ekki heilbrigðiseftirlitsins, ábendingar dýraþjónustu, ofnæmislækna, Húseigendafélagsins og svo frá.
Ég vildi nota tækifærið og spyrja hv. þingmann hvort hún hafi engar áhyggjur af því að hér sé gengið of langt, að fólk þurfi að víkja úr sínum heimilum, selja sínar íbúðir eða flytja vegna þess að það getur ekki eða treystir sér ekki til að búa í slíkri návist með dýrum.