157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[19:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir hans andsvar. Þetta er sambærileg spurning og hann spurði mig í fyrra máli, hvort ég hefði áhyggjur. Mér finnst erfitt að segja já eða nei í því sambandi. Eins og þetta er í núgildandi lögum hafa vissulega líka komið upp mál vegna þessa eins og við vitum. Við höfum fengið yfirlit yfir það, þótt það séu færri mál en ég hefði kannski átt von á að kæmu upp í þessum málaflokki. Ég geri mér grein fyrir, og við gerum það held ég öll, að alveg sama hvernig landslagið yrði í þessu sambandi kæmu alltaf upp einhver mál. Eins og þetta er núna hafa þessi sorglegu mál hins vegar verið býsna mörg, þar sem fólk hefur þurft að láta frá sér dýrin sín jafnvel án þess að fyrir því liggi málefnaleg rök, kannski bara einhvers eins einstaklings sem er á móti því og vill ekki fá dýr í stigaganginn en þarf ekki að sýna endanlega fram á af hverju hann er á móti því. Þannig eru lögin í dag. Það eru ansi mörg dæmi um svona mál þar sem mikill harmleikur á sér stað og við höfum mörg tekið gríðarlega nærri okkur. Þessi mál eru kannski ekkert að rata inn í málaskrá Dýraþjónustunnar eða áður til heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar. Það eru hins vegar bitmál og svona árásarmál sem rata þangað þannig að þau eru meira áberandi. Ég vil samt draga fram hitt líka, að við þurfum að horfa á þetta út frá öllum hliðum. Aftur vil ég bara benda á að við teljum vera belti og axlabönd í þessu máli, ef það koma upp þessar aðstæður sem virkilegur ami og ónæði er af. Ég held að ég hafi farið ágætlega yfir það í nefndarálitinu. Ég fæ að koma aftur og tala aðeins um ja, ég veit ekki hvort spurningin var um Norðurlöndin, (Forseti hringir.) hvort við værum að ganga lengra. Það kannski kemur næst.