157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[19:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Við erum auðvitað búin að taka ýmsa hringi akkúrat um þessi mál í nefndinni en erum hér núna. Við teljum okkur hafa legið yfir þessu. Þetta er náttúrlega í annað sinn sem þetta mál er flutt hér, þ.e. þetta var líka á síðasta þingi. Við teljum að þarna séu bæði belti og axlabönd og að það sé virkilega bara ágætlega staðið að því að ef koma upp þessi mál þar sem dýr veldur verulegum ama og það er samþykki tveggja, þriggja þá muni það væntanlega hafa áhrif á fleiri en einhvern einn íbúðareigenda. Ef við erum að tala um slík mál að vandlega athuguðu máli og af mikilli íhugun í þessu sambandi er þetta niðurstaðan og við upplifum okkur örugg með hana. Ég get ekki svarað þessu mikið öðruvísi en þetta er vissulega breyting frá því sem var. Við viljum líka stíga út úr því umhverfi, sem var náttúrlega algerlega þannig að eigandi dýrs átti heldur betur á brattann að sækja. Núna lítum við til Norðurlandanna og ég held að hvað þetta atriði varðar séum við í rauninni bara að stíga mjög sambærileg skref og þau eru að gera í þessu.