157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 201, um lífeyris- og meðlagsgreiðslur til erlendra ríkisborgara, frá Rósu Guðbjartsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 131, um þjónustugjöld, frá Tryggva Mássyni.