157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

aðgerðir stjórnvalda í málefnum hælisleitenda.

[10:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Að undanförnu virðast ýmsir leiðtogar Evrópuríkja vera að vakna gagnvart því ástandi sem ríkir í hælisleitendamálum og innflytjendamálum almennt í álfunni. Spurningin er hins vegar enn hvort það sé eitthvað hald í því eða hversu alvara mönnum er. Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, talar um að nú þurfi hælisleitendur að halda til síns heima og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ætlar að nota forystu Dana í Evrópusambandinu til að reyna að kveikja ljósin í Brussel í þessum efnum. Hún bendir á að samfélagslegri samheldni í Danmörku stafi ógn af þróuninni og hún sé í raun helsta ógnin sem steðji að norrænu samstarfi líka.

Spurningin er hvort íslensk stjórnvöld muni ekki bara segjast hafa áhyggjur, heldur bregðast við og gera eitthvað. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur nú nýverið, a.m.k. í tvígang, lýst áhyggjum af þróuninni en hvers er að vænta í aðgerðum sem virka og hafa einhver raunveruleg áhrif? Ég vil reyndar hrósa hæstv. ráðherra fyrir væntanlegt frumvarp þar sem þessi mál eru í auknum mæli færð undir dómsmálaráðuneytið sem ég tel vera æskilegt af hálfu hæstv. ráðherra. Jafnframt er þar einhver viðleitni til að taka á einni af glufunum sem varðar misnotkun námsmannaleyfa, þótt skýringarnar sem gefnar eru á aðferðinni við það séu ekki endilega til þess fallnar að sannfæra mig um að þær muni duga. Ég spyr því: Hvers er að vænta annars en þessa frumvarps sem nú liggur í samráðsgátt stjórnvalda? Má vænta einhverra aðgerða frá hæstv. ráðherra í samræmi við, ef ekki orð forsætisráðherra Danmerkur, þá orð hæstv. ráðherra sjálfs?