157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

endurskoðun laga um almannavarnir.

[10:40]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Við í þingflokki Framsóknar og borgarfulltrúar í Reykjavík notuðum síðustu viku þegar lítið var um að vera hér í þinginu — sem hefur reyndar verið einkennandi síðustu vikurnar, auðvitað var Norðurlandaráðsþing — og heimsóttum nokkra aðila, þar á meðal Rauða krossinn og Landsbjörg. Þá mundi ég eftir því að einmitt á þingmálaskrá, sem hæstv. ráðherra var að vísa hér til að við gætum fengið allar upplýsingar úr, er endurskoðun á lögum um almannavarnir, sem ég tel vera mjög mikilvægt mál. Það mál átti reyndar að koma fram í október eins og 40 önnur mál sem ekki hafa enn komið fram á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það eru aðeins 47 mál komin fram af þeim 87 sem áttu að birtast í september–október. Það er auðvitað einhvers konar mælikvarði á, ég veit ekki, verkstjórn eða alla vega hægagang.

Það sem mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra út í í sambandi við almannavarnir eru einmitt þær umsagnir sem hafa komið í samráðsgáttina; varnaðarorð um að við séum e.t.v. ekki algerlega á réttri leið með því að færa almannavarnir, eins og við höfum verið að gera síðustu ár, í sífellt meiri mæli undir lögregluvaldið, lögreglulögin, lögreglunálgunina. Ég hef það fyrir satt að mikilsvert fólk í Vestmannaeyjum eftir gosið þar hafði samband við mig fljótlega þegar gosið í Grindavík hófst og sagði einfaldlega: Ef við hefðum verið með núverandi almannavarnakerfi þá efast ég um að Vestmannaeyjar hefðu byggst upp einfaldlega vegna þess að við nálgumst almannavarnir öðruvísi. Við sjáum núna (Forseti hringir.) að þegar samhæfingarstöðin er horfin úr Skógarhlíðinni að það er ekki þessi samstaða allra þeirra aðila sem þarna eru. Ég sé í samráðsgáttinni athugasemdir þessara aðila sem ég nefndi hérna áðan og mig langar einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra — og afsaka tímastuldinn hér: Hvenær kemur þetta frumvarp? Verður tekið tillit til þessara sjónarmiða sem eru úti í samfélaginu?