157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

endurskoðun laga um almannavarnir.

[10:44]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Mér heyrist á ráðherranum að það sé ekki í bígerð að breyta hugsuninni á bak við frumvarpið þrátt fyrir að athugasemdir einstakra aðila séu, eigum við ekki að segja verulega athyglisverðar. Ég er sammála því að almannavarnakerfið okkar er gríðarlega mikilvægt. Það samanstendur af ólíkum hlutum; augljóslega lögreglunni sem fer með valdsviðið og valdið á vettvangi, en það eru líka, eins og ég hef áður nefnt, björgunarsveitirnar sem eru mjög stór hluti og lykilpartur í því viðbragði sem við getum beitt og við þurfum að gera. Svo eru það samfélögin, samtök frjálsra félagasamtaka, sveitarfélögin og önnur. Ég hef verið að velta því fyrir mér, og ég deili þeim áhyggjum sem m.a. koma fram hjá Landsbjörg, hvort almannavarnir ættu þá ekki frekar í raun heima undir forsætisráðuneytinu (Forseti hringir.) en dómsmálaráðuneytinu. Þar með væri skipuritið með einhverjum öðrum hætti til þess einmitt að tryggja þetta víðtæka samráð allra þessara ólíku aðila.