aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Þetta er auðvitað gríðarlega mikilvægt mál og ég er fegin að hv. þingmaður, Sjálfstæðisflokkurinn og fleiri eru að fagna ákveðnum skrefum sem við höfum tekið þarna inn, skref sem fyrri ríkisstjórnir hafa ekki tekið. Það er verið að gera ákveðna hluti einmitt í tengslum við séreignarsparnaðinn varanlega til tíu ára fyrir hverja einstaklinga. Það skiptir mjög miklu máli og ég er fegin að tónarnir þar eru ekkert ósvipaðir okkar. Ég er ekki sammála þeirri nálgun að það sé verið að ríkisvæða húsnæðiskerfið sem slíkt og þetta er vel að merkja fyrsta skrefið af mörgum pökkum sem er verið að kynna til sögunnar. Það eru hins vegar ákveðnar ástæður, ég kem að því síðar í mínu seinna andsvari, en það er m.a. verið að ýta undir það að það verði auðveldara fyrir fyrstu kaupendur og ekki síst ungt fólk sem hefur átt í mjög miklum erfiðleikum með að komast inn á húsnæðismarkað. Þetta þekkjum við. Við erum að heyra sögur af fólki sem annaðhvort nýtur stuðnings foreldra á þessum árum eða þar sem börnin og fólkið er enn heima hjá mömmu og pabba. Þetta eru erfiðleikar sem við stöndum frammi fyrir og við erum að mínu mati að taka skref í þá veru. Sú gagnrýni sem hefur verið sett fram af ýmsum, að sjálfsögðu mun þingið líka skoða það og hvað hægt er að gera betur en stóra myndin er sú að það er verið að taka mikilvæg skref til þess að einfalda regluverk á húsnæðismarkaði, til þess að einfalda aðkomu ungs fólks á markaði. Það er verið að koma í veg fyrir að ákveðnir aðilar leiki sér á húsnæðismarkaðnum sem hefur haft það í för með sér að bæði leiguverð hefur verið of hátt og húsnæðisverð, þannig að þau stóru mikilvægu skref sem eru tekin í þessum hluta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar eru mjög mikilvægt innlegg. Það er ekki síst verið að bregðast við m.a. dómi Hæstaréttar sem féll nýverið sem sýnir líka að ríkisstjórnin er að bregðast hratt og örugglega við.