157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum.

[10:53]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Stundum er verið að snúa hlutum á hvolf í svona fyrirspurnum. Það sem er að gerast m.a. í þessum pakka sem ríkisstjórnir, m.a. undir forystu Sjálfstæðisflokksins, treystu sér ekki til að gera, er að festa séreignarsparnaðarfyrirkomulagið í sessi í ákveðinn tíma. Það er skref sem er mikilvægt og ég hefði haldið einmitt að menn myndu fagna því sérstaklega. Varðandi framboð á lóðum þá tryggði einmitt Viðreisn í Reykjavík hvað varðar þessar 4.000 íbúðir núna í Úlfarsárdal, það er mikil innspýting inn í fasteignaumhverfið, að það yrði sérstaklega haldið utan um þær íbúðir og það yrði markaður fyrir þessar íbúðir sem nú er verið að setja inn. Það er verið að stíga mjög mikilvæg skref í þessu. En talandi um það sem er stefna Viðreisnar: Já, minni ríkisafskipti, einfaldara regluverk, aukið aðgengi, ekki síst ungs fólks, að íbúðamarkaði. Allt skiptir þetta máli en til lengri tíma munum við alltaf þurfa að fjalla um húsnæðispakka og húsnæðispakka á ofan af því að við erum á endanum ekki að ráðast að rót vandans, að mínu mati, af því að við erum að tala um Viðreisn. Það er auðvitað fyrirsjáanlegur og stöðugur gjaldmiðill (Forseti hringir.) sem veitir lægra vaxtaumhverfi, sem tryggir það að við erum ekki alltaf með viðvarandi háa verðbólgu. Það er raunverulegur stuðningur við alla, ekki bara ungt fólk (Forseti hringir.) heldur fyrir allt samfélagið, bæði fólk og fyrirtæki. Það er auðvitað önnur umræða sem við getum tekið en það er m.a. það sem við í Viðreisn erum óþreytandi að benda á.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að í seinni umferð í óundirbúnum fyrirspurnatíma er ræðutíminn ein mínúta.)