staðan í efnahagsmálum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn sem er mikilvæg og það mikilvæg að það er sérstök umræða um nákvæmlega þetta efni á eftir. Þetta eru allt atriði sem ríkisstjórnin tekur mjög alvarlega, er þegar byrjuð að bregðast við og er með augun á boltanum. Þá skiptir einmitt máli að það sé samhent ríkisstjórn sem gengur í þessi verk af því að það er auðveldara heldur en sundurlyndið sem við höfum upplifað á síðustu misserum og árum undir forystu annarra flokka, m.a. þess flokks sem hv. þingmaður tilheyrir. Það verður farið yfir þetta hvort tveggja hér á eftir.
Ég vil hins vegar taka undir áhyggjur varðandi þessi áföll sem við höfum staðið frammi fyrir, hvort sem við erum að horfa á Norðurál — við stöndum frammi fyrir mjög ófyrirséðum ákvörðunum, bæði vestan hafs varðandi tollamál, sem eru algjörlega ófyrirséðar og allar þjóðir standa frammi fyrir, og það sama er hugsanlegt með ákvarðanir af hálfu Evrópusambandsins þegar kemur að viðskiptaþvingunum á kísil. Ég velti fyrir mér þegar ég hlustaði á hv. þingmann áðan: Er Framsóknarflokkurinn líka farinn að feta það einstigi, að mínu mati, sem ýmsir aðrir flokkar í stjórnarandstöðunni eru að feta, þ.e. að tala niður alþjóðastarf? Af hverju erum við Íslendingar að taka þátt í alþjóðastarfi? Ekki til að feta einhverja götu sem hv. þingmaður talaði um, í Brussel eða Berlín eða hvar það er. Til þess að verja íslenska hagsmuni. Við erum í NATO af því að við erum að verja íslenska hagsmuni og fullveldi. Við tökum þátt í EFTA til að verja íslenska hagsmuni og fullveldi, til að gera atvinnulífið okkar samkeppnishæfara, til að tryggja aðgang að mörkuðum, til að vera með líkt þenkjandi þjóðum í baráttu fyrir einmitt grundvallargildum okkar, samfélagi sem hefur gert okkur rík, hvort sem það er á sviði jafnréttismála eða að byggja undir þekkingu á sviði orkumála, sjávarútvegsmála eða annarra. Þannig að þegar (Forseti hringir.) við erum í alþjóðasamskiptum þá er áttavitinn alltaf Ísland, Ísland, Ísland. Og ég vona að Framsóknarflokkurinn sé ekki að taka þátt í því að tala það niður.