fjármál embættis ríkislögreglustjóra.
Virðulegi forseti. Við hér í þingsal sem og almenningur í landinu erum sammála um það að það er mikilvægt að fara vel með opinbert fjármagn. Við þurfum öll að vera á vaktinni til að alltaf sé svo. Við erum einnig sammála um það að traust til lögreglunnar er eitt mikilvægasta verkfæri lögreglunnar og mikilvægt að það sé til staðar. Það eykur líka öryggistilfinningu í okkar landi. Við treystum líka á að lögreglan standi sig og vinni faglega að sínum störfum. Því hefur ekki farið fram hjá neinum sú umræða um það mál sem hefur komið upp um innkaup embættis ríkislögreglustjóra. Það hefur komið fram af hálfu ríkislögreglustjóra að það voru í það minnsta mistök hvernig þau fóru fram. Því langar mig að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvenær ráðherrann vissi fyrst af þessum misbresti í innkaupum og innkaupareglum hjá embætti ríkislögreglustjóra. Hver voru þá viðbrögð hæstv. ráðherra við þeim upplýsingum? Eru þau gögn og upplýsingar sem ráðherra óskaði eftir frá ríkislögreglustjóra komin nú þegar? Er dómsmálaráðuneytið upplýst nú þegar um hvort fleiri slík mál séu innan stofnana sem heyra undir dómsmálaráðuneytið? Hvenær megum við vænta niðurstöðu skoðunar á þessu máli?