157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

fjármál embættis ríkislögreglustjóra.

[11:05]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og ég er honum hjartanlega sammála um það að hjá lykilstofnunum á borð við lögreglu í landinu og dómstóla sé traust alger lykilþáttur. Þessar stofnanir eiga allt sitt undir trausti almennings. Hv. þingmaður spyr um fjármál ríkislögreglustjóra og þau hafa verið til skoðunar í mínu ráðuneyti nánast frá því að ég tók við vegna hallareksturs þar og þar á ríkislögreglustjóraembættið sér sannarlega málsbætur. Við þekkjum það hvaða verkefni hafa dunið á; Grindavík og önnur áföll.

Hvað þetta tiltekna mál varðar, þessi innkaup og viðskipti ríkislögreglustjóraembættisins við félagið Intra, þá heyrði ég af því eins og aðrir þegar það kom upp í fjölmiðlum. Ég brást strax við, fundaði með ríkislögreglustjóra og óskaði eftir skýringum. Ég hef síðan fundað með henni öðru sinni þar sem ég hef rætt við hana um þetta mál og greint henni frá því að ég líti það alvarlegum augum og af því leiðir auðvitað að ég lít þannig á að staða ríkislögreglustjóra sem forstöðumanns sé alvarleg. Ég hef rætt þetta mál í tvígang við forstöðumanninn, óskað eftir gögnum og skýringum um þessi tilteknu viðskipti og þau bárust að mér skilst um miðnætti í gær. Ég minni á að það er um vika síðan þetta mál kom upp og nú verða gögnin yfirfarin.

Ég skil vel þungann í umræðunni. Ég heyri gagnrýnina og átta mig á alvarleika málsins en ég er auðvitað sem dómsmálaráðherra, og við ráðherrar allir, bundin af því að vinna í samræmi við lög og reglur. Tímasýsla stjórnsýslunnar og fjölmiðla er ekki alltaf hin sama en ég get fullvissað þingmanninn um það að þetta mál er unnið í samræmi við alvarleikastig þess og verður jafnframt unnið í samræmi við áskilnað laga og reglna og með faglegum hætti.