157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

fjármál embættis ríkislögreglustjóra.

[11:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Forseti. Sú vinna sem var í gangi í dómsmálaráðuneytinu þessa tíu mánuði sem ég hef setið í embætti varðaði reksturinn í heild sinni. Við erum í heildstæðri úttekt og fengum endurskoðanda inn til að rýna í það hvernig reksturinn liti út. Það er í sjálfu sér ekkert nýmæli og við höfum margsinnis rætt það í þessum sal hvaða umgjörð lögreglan hefur mátt búa við á liðnum árum af hálfu fyrri ríkisstjórnar. Ég reyndi auðvitað að nálgast málið út frá því hver væri rekstrarstaða lögreglunnar, í þessu tilviki ríkislögreglustjóra, en ég var ekki með til skoðunar einstök innkaup. Um leið og þetta mál kom upp í fjölmiðlum þá óskaði ég hins vegar eftir upplýsingum um þessi innkaup og spurði jafnframt: Eru fleiri slíkir samningar í gangi? Ég hef nú, á miðnætti, fengið svör við þessum spurningum. Ég er sammála þingmanninum um að lögregla í landinu, ríkislögreglustjóraembættið og forstöðumenn þar eigi allt sitt undir því að almenningur beri traust til þeirra. Vitaskuld erum við líka að tala um það hvernig meðferð fjármuna hefur verið og ég heyri og ég finn og ég skynja taktinn í umræðunni. (Forseti hringir.) Þetta mál er til skoðunar og ég mun vinna það í samræmi við kröfur stjórnsýslulaga en hratt og vel.