Staðan í efnahagsmálum.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir að efna til þessarar mikilvægu umræðu um efnahagsmál. Þótt það sé mikilvægt að ræða málefni dagsins og án þess að gera lítið úr þeim málum sem málshefjandi nefndi í sinni ræðu er Alþingi þannig vettvangur að hér eru helst teknar ákvarðanir sem skulu gilda til millilangs og langs tíma og hæstv. forsætisráðherra fór vel yfir málin í ræðu sinni. Einn lykilþáttur í efnahagsmálum er atvinnulíf og verðmætasköpun sem gerist í góðu samstarfi hins opinbera og einkaaðila. Ég vil því sérstaklega tala um atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar sem ég er spenntur fyrir og er nú til vinnslu því að þar er lögð áhersla á atvinnu með háa framleiðni og að hún sé um allt land. Hugmyndirnar skortir ekki og eftirsókn í fjármagn sýnir það.
Það eru nefnilega margar atvinnugreinar þar sem okkur hefur gengið vel á heimsvísu og við kunnum og enn eru mikil tækifæri þar til verðmætasköpunar. Ýmislegt bendir t.d. til þess að Ísland geti á næstu árum orðið nettóútflytjandi lyfja. Þegar lækningavörur eru teknar með er útflutningur tugum milljarða meiri en innflutningur og ég vænti þess að þessa sjáist merki í atvinnustefnu. Annað dæmi er laxeldi í sjó og á landi sem smám saman er að tvinnast saman með lengri tíma á landi og styttri tíma í sjó og þar með betri nýtingu auðlindanna. Með aukningu á eldi verða til þekkingarfyrirtæki sem miðast að laxeldinu og þá gætum við endurtekið leikinn úr sjávarútveginum þar sem burðaratvinnugrein varð gróðurmold fyrir sprota af ýmsu tagi. Enn annað er makalaus vöxtur ferðaþjónustunnar þar sem t.d. móttaka skemmtiferðaskipa er með háa framleiðni og rímar þar með við atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.
Hæstv. forseti. Öflugur efnahagur þarf burðuga verðmætasköpun sem aftur þarf stöðugleika og fyrirsjáanleika. Það næst með trúverðugum stjórnvöldum sem taka fyrirsjáanlegar ákvarðanir sem hlúa að samkeppnishæfni allra mismunandi greina. Það gerist með samhentri ríkisstjórn sem lækkar vexti og verðbólgu.