157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

Staðan í efnahagsmálum.

[11:29]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur sannarlega brugðist við efnahagsástandinu. Hallalaus fjárlög 2027, aðgerðir í húsnæðismálum sem hafa verið einn helsti drifkraftur verðbólgu síðustu ára og áratuga. Þegar við komum inn í ríkisstjórnarsamstarfið var húsaleiga á almennum markaði hærri en útborguð lágmarkslaun. Þetta er staðan sem við tökum við. Mikilvægustu aðgerðirnar eru að mínu mati þær að fara í raunverulegar aðgerðir, ekki yfirlýsingar, sem munu skila okkur raunverulegum ávinningi í baráttunni gegn verðbólgunni og þar af leiðandi lægri vöxtum, eins og með að festa hlutdeildarlán í sessi, eins og að hækka stofnframlög úr 30–35%. Óhagnaðardrifnu félögin innan almenna íbúðakerfisins hafa verið að bjóða húsaleigu á helmingi lægra verði en markaðnum tekst að bjóða, markaðnum sem fyrri ríkisstjórn hefur stutt og talið að gæti leyst þann gríðarlega vanda og þennan helsta drifkraft verðbólgu síðustu ára. Það sem skiptir meginmáli í þessu er að fara í raunverulegar aðgerðir sem snúa að auknu lóðaframboði, eins og t.d. uppbyggingu í Úlfarsárdal sem hefur verið stopp árum saman, einnig að taka til ríkislóðir og byggingar í eigu ríkisins og breyta í hagkvæmt húsnæði sem er væntanlegt í næsta aðgerðapakka og síðast en ekki síst, sem skiptir auðvitað mjög miklu máli, að auka hvata sveitarfélaganna til að byggja upp ný hverfi, fjölga hagkvæmu húsnæði með þátttöku og aðstoð í að ná niður innviðakostnaði. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru svo sannarlega að tala inn í það risastóra verkefni sem við erum með fyrir framan okkur og ég er stoltur af því að vera hluti af þessari ríkisstjórn.