157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

Staðan í efnahagsmálum.

[11:33]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir þessa sérstöku umræðu um efnahagsmál. En ég vil byrja á að leiðrétta hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson, að við tókum ekki við fjárlögum með 19 milljarða halla. Þeir voru 60. Það er gott að fara með rétt mál. (GÞÞ: Nei. ... Það er rangt.)

En það eru ýmsir þættir sem geta haft áhrif á stöðu efnahagsmála og þar á meðal þættir sem ríkisstjórnin hefur lítið sem ekkert með að gera. Má þar nefna lokun PCC á Bakka, bilunina hjá Norðuráli og fall flugfélagsins Play. Svona atburðir eru ekki einsdæmi, en eitt getum við verið viss um; sambærileg atburðir geta gerst aftur. Þá er nauðsynlegt að byggja upp viðnámsþrótt ríkissjóðs svo hægt sé að takast á við efnahagsleg áföll. Mikilvægast er að tryggja að grunnstoðir hagkerfisins sterkar. Það hefur ríkisstjórnin verið að gera. Tekjur ríkissjóðs eru vaxandi. Skuldir þjóðarbúsins eru lágar í alþjóðlegum samanburði og við erum með sterkar útflutningsgreinar sem gefa svigrúm til að takast á við efnahagsleg áföll. Ríkisstjórnin sýnir festu í verki til að treysta viðnámsþrótt gagnvart áföllum og áskorunum. Hún styður vöxt verðmætasköpunar til framtíðar samhliða því að draga úr sligandi vaxtagjöldum. Hallalaus fjárlög árið 2027. Lækkun skulda. Stöðugleikareglan tryggir að bætt lífskjör í dag verða ekki fjármögnuð með lánum og reikningurinn sendur til komandi kynslóða. Allt eru þetta aðgerðir til að treysta ríkissjóð.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur nálgast efnahagsmálin af mikilli festu og ábyrgð, grípur til aðgerða í ríkisfjármálum til að ná fram efnahagslegum stöðugleika og sækir fram. Þó að það séu tímabundnir erfiðleikar í atvinnulífinu er óþarfi að teikna upp stöðuna verri en hún er. Það eru mörg jákvæð teikn á lofti í atvinnu, t.d. á Vesturlandi, og það eru engin áform hjá Norðuráli að segja upp fólki enn sem komið er, ekki sem við vitum. Stjórnvöld eru í góðum tengslum við Þróunarfélag Grundartanga um spennandi verkefni. En það þarf að fylgjast náið með stöðunni líkt og stjórnvöld eru nú að gera. Það mun líka birta yfir atvinnumálum á norðausturhorninu, vitið til.