Staðan í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. „Uppsagnir hjá Icelandair“, „Hópuppsögn í fiskvinnslu“, „Nær engar líkur á vaxtalækkun“, „Misvitrir stjórnmálamenn skattleggja útgerðina í drep“, „Uppsagnir hjá Morgunblaðinu“, „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“, „Næstum því ómögulegt að kaupa fasteign í dag“, „Hef aldrei upplifað aðra eins óvissu á 13 ára ferli“, „25 sagt upp í fiskvinnslu“, „Verðbólga ekki meiri síðan í janúar“, „Uppsagnir vegna hækkaðra veiðigjalda“, „Fjöldi fyrirtækja þarf að segja upp fólki“, „Öllum sagt upp hjá SR Vélaverkstæði á Siglufirði“, „22 sagt upp hjá Samkaupum“, „Gert er ráð fyrir 4,5% verðbólgu í janúar“, 70 sagt upp á stuttum tíma í fréttum frá Vestmannaeyjum, 55 starfsmönnum sagt upp vegna falls Play, í heildina um 600. Uppsagnir hjá Sýn og hér sleppi ég fréttum frá Bakka og Norðuráli, svo dæmi séu tekin. Þetta eru bara af handahófi fyrirsagnir í fréttum síðustu vikur. Síðan fengum við hér einhver skilaboð úr hliðarveruleika ríkisstjórnarinnar í viðbrögðum hæstv. forsætisráðherra sem virðist ramma það inn að ríkisstjórnin er í engum færum til að átta sig á alvarleika málsins og þess sem þarf til að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er.
Ríkisstjórnin barði sér á brjóst fyrir að leggja fram það sem væri hægt að kalla og er kallað hlutlaus fjárlög með tilliti til verðbólguþrýstings og sjónarmiða Seðlabankans, hlutlaus þegar við svo sannarlega þurftum á því að halda að ríkisstjórnin legði sitt af mörkum. Útgjaldavöxtur á milli ára rúmlega tvöfaldaðist. Það voru ekki skilaboðin sem við þurftum á að halda til að horfa fram á að það næðust tök á verðbólgu og verðbólguvæntingum.
Ríkisstjórnin verður að hysja upp um sig buxurnar. Hvar er tiltektin? Hvar er verðmætasköpunarhaustið og hvar er planið? Þetta eru spurningar sem fólk er að spyrja sig um allt samfélagið. Miðað við þær fréttir sem birtast okkur núna þá verður hæstv. ríkisstjórn að átta sig á því að hún er með alla þessa bolta í fanginu. Það er ekki hægt að vísa þessum vandamálum út í bæ.