Staðan í efnahagsmálum.
Virðulegur forseti. Sterkur efnahagur er það umhverfi sem við byggjum á. Við byggjum alla okkar velferð á því og okkar framtíð. Stór ástæða sterkrar stöðu efnahags okkar Íslendinga er m.a. öflugir atvinnuvegir og þá ekki síst okkar útflutningsgreinar. Það er því eðlilegt að hafa áhyggjur þegar gefur á bátinn. Við höfum vissulega orðið fyrir ágjöf, reyndar ekki í fyrsta skipti, sem mun líklega hafa áhrif á okkar efnahagslíf og við munum áfram verða fyrir slíku í framtíðinni. En það skiptir máli að halda yfirvegun og byggja ákvarðanir um framhaldið á áreiðanlegum upplýsingum og það eru stjórnvöld að gera. Það er vissulega nauðsynlegt að ræða þá stöðu sem upp er komin og skiptast á skoðunum um hugsanlegar afleiðingar og aðgerðir og við höfum og munum áfram hafa ólíka sýn á það. Ég heyri samt ekki betur en að það sé markmið okkar allra sem sitjum á Alþingi að fara vel með fjármuni ríkisins, fjármuni sem okkur hefur verið treyst fyrir af þjóðinni, og standa undir því trausti.
Stefna ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans á Alþingi er að mínu mati mjög traustvekjandi. Við viljum draga úr skuldsetningu ríkisins og þá verðum við að sýna aga og yfirvegun. Við verðum að ná tökum á ríkisrekstrinum. Aðeins þannig getum við byggt okkur enn betur upp fyrir framtíðina og mætt ágjöf. Það er og verður hlutverk okkar sem sitjum á Alþingi að treysta grunninn og styrkja jarðveginn fyrir komandi kynslóðir. Það er ekki í boði að bregðast við ágjöf með fljótfærnislegum aðgerðum eða fara á taugum. Það skiptir mestu máli núna að halda utan um það fólk sem verður fyrir áhrifum af þessari stöðu.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að fá umræðu eins og hér í dag og ég þakka kærlega fyrir hana. Það er mikilvægt fyrir okkur að horfa til framtíðar og að hún sé rædd en gleymum þá ekki að ræða hið séríslenska efnahagslega vandamál sem hefur fylgt okkur hvað lengst, íslensku krónuna. Hún hefur veruleg áhrif á okkar efnahagslegu stöðu, stöðu heimila og fyrirtækja og okkar framtíð.