157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

Staðan í efnahagsmálum.

[11:41]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er óhætt að segja að óveðursský hrannist upp í efnahagsmálum landsins. Fögur fyrirheit um að berja verðbólguna niður hafa ekki gengið eftir. Verðbólgan er að hækka. Ef spár ganga eftir verður verðbólgan að nálgast 5% í janúar sem er svipuð verðbólga og var fyrir ári síðan þegar ný ríkisstjórn tók við. Ljóst er að árangur ríkisstjórnarinnar í því verkefni er afar rýr. Í því fjárlagafrumvarpi sem nú er til umræðu á þingi er ekki gert ráð fyrir neinum áföllum í íslensku samfélagi. Þrátt fyrir að ekkert slíkt sé í frumvarpinu er búið að spenna bogann til hins ýtrasta og svigrúm til að bregðast við er nánast ekki neitt. En það hefur ýmislegt breyst frá því að frumvarpið var lagt fram, eins og hefur komið hér fram í umræðunni. PCC á Bakka, fall Play, Norðurál með sínum stóru óvissuþáttum, óvissa í tollamálum, þorskkvóti hefur verið skertur og minni fjárfestingargeta í íslenskum sjávarútvegi. Það er óvissa í ferðaþjónustu og blikur á lofti um að ferðamönnum muni fækka á árinu 2026. Við höfum séð óvissu og uppsagnir hjá Icelandair. Við erum að horfa upp á rauðan nóvember í Kauphöll Íslands. Það eru spár um minni hagvöxt á næsta ári, minni útflutningstekjur og hærra atvinnuleysi. Fasteignamarkaðurinn er í frosti og ljóst að byggingarverktakar munu lenda í verulegum vandræðum með að standa undir fjármögnun óseldra eigna í því vaxtaumhverfi sem þeim er gert að starfa í og áhyggjur eru af því að einhverjir muni ekki lifa það af. Í ljósi þessa ætti öllum að vera ljóst að forsendur fjárlaga eru brostnar að verulegu leyti og allt önnur sviðsmynd blasir nú við okkur gagnvart næsta ári en þegar fjárlagafrumvarpið var samið í sumar.

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin þarf að bregðast við. Við getum ekki stungið höfðinu í sandinn og látið sem ekkert sé eða bent á aðra. (Forseti hringir.) Þetta mun hafa áhrif. Allt tal um annað stenst enga skoðun.