157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

Staðan í efnahagsmálum.

[11:46]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra og hv. þingmönnum fyrir þessa umræðu hér í dag. Við undirbúning umræðunnar rifjuðust upp fyrir mér þekkt ummæli Joes Bidens, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem hæstv. forsætisráðherra hefur einnig vitnað til, en þau eru: Sýndu mér fjárlögin þín og þá segi ég þér hver stefna þín er í pólitík. Ríkisstjórnin hefur sýnt á spilin og fjárlagafrumvarpið liggur fyrir. Frumvarpið segir okkur hvað þessi ríkisstjórn kýs að gera. Ef hún kýs að halda ríkisútgjöldum háum en kallar það tiltekt og stöðugleika þá mun óvissan fylgja okkur áfram. Ef hún kýs að tala um verðmætasköpun en stillir samt skatta og álögur af með þeim hætti að minna verður eftir hjá fólki og fyrirtækjum þá finnum við enga fótfestu.

Virðulegi forseti. Við þekkjum öll orð hæstv. forsætisráðherra um plan og sleggju sem átti að negla niður vexti. Þessi orð sitja eftir sem tákn um þá pólitík sem ríkisstjórnin rekur sem snýst öll um slagorð en ekki árangur, um umbúðir og ekkert innihald. Eins og hæstv. forsætisráðherra minnti okkur sjálf á með orðum Bidens sýnir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar forgangsröðun og stefnu. Þegar við berum fjárlögin saman við það sem er að gerast í raun með þrálátri verðbólgu, litlu svigrúmi til vaxtalækkana og uppsögnum á vinnumarkaði stendur eftir sú spurning hvort ekki sé kominn sá tímapunktur að horfast í augu við þá staðreynd að plan ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum er einfaldlega ekki að virka.