Staðan í efnahagsmálum.
Forseti. Ég vil þakka fyrir mjög góða umræðu hér í dag. Hér hefur verið rætt um að forsendur fjárlaga séu brostnar. Við erum með sveiflujafnara í kerfinu okkar af ástæðu. Við erum með stöðugleikareglu af ástæðu — til þess að geta brugðist við svona aðstæðum sem koma upp. Við innleiðum ákveðna ramma til að geta brugðist við. Við erum með plan, þetta snýst um plan en ekki panik, bara svo það sé alveg á hreinu. Við þurfum áfram að halda okkur við þá uppbyggingu sem á að vera til staðar.
Talandi um fjárlög, talandi um fjármálaáætlun. Ég skal sýna ykkur þá áætlun og hvað hún segir um þessa ríkisstjórn: 100 milljarðar í tiltekt og hagræðingu næstu fjögur árin. 7 milljarða viðbót strax í samgöngur. Innviðafélag sem verður stofnað núna fyrir áramót. Það er plan. Það er ekki panik. Það eru sveiflujafnarar í kerfinu sem grípa svona aðstæður sem upp koma. Það breytir því ekki að það er virkt samtal. Við erum búin að vera í virku samtali t.d. við Þróunarfélag Grundartanga um mögulegar aðgerðir og það er alvara í þeim aðgerðum. Við erum búin að vera í virku samtali við Norðurþing út af stöðunni á Bakka. Við munum m.a. í dag kynna stórar og mikilvægar aðgerðir í orkumálum á Norðurlandi og Norðausturlandi sem m.a. taka á þeirri stöðu sem upp er komin. Það er því ekki þannig að ríkisstjórnin sitji og horfi á ástandið en við erum ekki að missa fæturna. Það er lykilatriðið. Það eru sveiflujafnarar í kerfinu, það er stöðugleikaregla sem gefur eftir að hluta til ef aðstæður eru þannig í kerfinu, þannig að strúktúrinn, ramminn, skiptir aðalmáli í þessu samhengi. Við erum að bregðast við með þeim hætti sem eðlilegt er. Það kemur mér líka á óvart að ákveðnir flokkar tali hér um stórtæk inngrip, mögulega inn í einkafyrirtæki, ef það er það sem er verið að kalla eftir. Það er ramminn sem skiptir máli. Það er uppbyggingin sem skiptir máli, það er orkan, það eru samgöngurnar, það er afkoma ríkissjóðs sem við ætlum að halda á núlli 2027 í fyrsta skipti í tíu ár. (Forseti hringir.) En ég þakka fyrir góða umræðu og er til taks á næstu vikum ef fólk vill fylgja þessu eftir.