157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[11:51]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Sjálfstæðisflokkurinn stendur með mannréttindum fatlaðs fólks og hefur beitt sér fyrir framgangi þess samnings sem hér um ræðir, samnings Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk. Hann kom að undirritun hans árið 2007, fullgildingu 2016 og samþykkt þingsályktunar um lögfestingu árið 2019. Við höfum hins vegar verið gagnrýnin á undirbúning lögfestingarinnar og upplegg ríkisstjórnarinnar í þessu tiltekna máli. Hér er lagt upp með það að samningurinn feli í sér auknar réttarbætur fyrir fatlað fólk en kalli ekki á auknar aðgerðir eða aukinn kostnað sveitarfélaganna. Í þessu felst holur hljómur að mati þess sem hér stendur og lýsir því að inntakinu sé ekki tekið af nægjanlegri alvöru.

Ég mæli hér líka fyrir tveimur breytingartillögum sem ég hvet þingheim til að íhuga mjög alvarlega; annars vegar að samningurinn sé vistaður hjá skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála þar sem hann á heima, enda um mannréttindamál að ræða, og svo hins vegar endurskoðunarákvæði ef áhrif samningsins á fjárhag sveitarfélaga verða meiri en lagt er upp með.