157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[11:53]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Eins og glöggt mátti greina í 2. umræðu um málið hér í þingsal í gær þá sýnist sitt hverjum um réttaráhrif lögfestingar þessa samnings. Frá mínum bæjardyrum séð er það alveg ljóst að lögfesting samningsins sem slíks veitir því miður engin ný efnisleg réttindi eða réttaráhrif sem hægt er að byggja á í einstökum tilvikum. En af umræðunni hér og þinglegri meðferð að dæma þá er alveg ljóst að það er mikil óvissa um þetta og menn hafa gefið út, að mínu mati, óraunhæfar væntingar til fatlaðs fólks um réttaráhrif lögfestingarinnar. Ég hefði talið að það hefði farið betur á því að það yrði greint nánar í þinglegri meðferð frá þeim undirbúningi sem hefur átt sér stað til að renna stoðum undir lögfestingu þessa samnings og hvort það sé eitthvað eftir útistandandi. Það hefur ekki verið gert enn þá og af þeirri ástæðu situr Miðflokkurinn hjá við afgreiðslu þessa máls.