157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[11:57]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Framsókn styðjum lögfestingu þessa samnings. Við í Framsókn styðjum markmiðin sem eru í þessum samningi. En í 129. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að fara skuli fram fjárhagslegt mat á kostnaði þegar verið er að lögfesta lagafrumvarp eins og er verið að gera hér varðandi áhrif á sveitarfélög. Það var ljóst við vinnslu málsins í hv. velferðarnefnd að verulegur kostnaður mun falla á sveitarfélögin við lögfestinguna, allt að 14–18 milljarðar á ári, árlega. Við höfum kallað eftir því að málið fari aftur fyrir velferðarnefnd á milli 2. og 3. umræðu og ég bind vonir við að þar verði kallað eftir kostnaðarmati svo við séum bæði að uppfylla þær lagalegu skyldur sem við eigum að sinna þegar við erum að samþykkja lagafrumvarp og eins að við áttum okkur á því hvaða kostnað þetta hefur í för með sér fyrir sveitarfélög og aðra aðila sem þurfa að veita þjónustuna, því að það er eitt að lögfesta samninginn; það þurfa að fylgja (Forseti hringir.) fjármunir með til þess að það gangi raunverulega. Þannig að við í þingflokki Framsóknar munum sitja hjá hér en bindum vonir (Forseti hringir.) við að þetta verði unnið betur svo það sé hægt að samþykkja þetta hér í 3. umræðu.