samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt mál. Þetta er mál sem hefur því miður beðið allt of lengi og ég sem bæði formaður Viðreisnar og hluti af ríkisstjórninni er stolt af því að leggja það fram. Það hefur verið farið yfir þau sjónarmið sem hafa verið reifuð, m.a. af hálfu minni hluta, og ég geri ráð fyrir að sú umfjöllun hafi verið góð og gegn. Það sem mér finnst hins vegar skipta mestu máli er prinsippið í kringum þennan samning. Við erum hér í þinginu að hækka og lækka skatta og það eru alls konar greiningar sem liggja fyrir en það er samt gert. En þegar það snýr að fötluðum er eins og það þurfi að skúra út í hvert einasta horn. Á síðasta kjörtímabili mátti ekki lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna fyrr en mannréttindastofnunin væri komin á laggirnar og núna er hún komin en þá var bara eitthvað annað fundið. Ég segi því: Ég er mjög stolt af þessu máli. Já, það verða örugglega viðfangsefni sem tengjast því að við samþykkjum samning Sameinuðu þjóðanna um fötluð börn en það er áskorun sem ég tel að allur þingheimur eigi að taka saman á og fara í það verkefni saman. Við þurfum að senda skýr skilaboð til þessa viðkvæma hóps og við erum að gera það m.a. í ríkisstjórninni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)