157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[12:01]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er stór stund í sögu Alþingis og ég skora á þingheim allan að samþykkja þetta frumvarp. Markmið frumvarpsins er að tryggja réttindi fatlaðs fólks og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar. Það er grundvallaratriðið. Þetta er kveðið á um í 65. gr. íslensku stjórnarskrárinnar, jafnræðisreglunni, og með því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks erum við að tryggja það að fötluðu fólki sé ekki mismunað gagnvart öðrum. Við erum eitt ríkasta samfélag heims og eigum að muna það að ef við getum ekki gert þetta þá geta aðrar þjóðir ekki lögfest þennan sáttmála. Við eigum að vera stolt af því að lögfesta sáttmálann og þau réttindi sem fötluðum einstaklingum eru falin í lögum sem verða vonandi samþykkt innan tíðar.