samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Mér finnst hálfdapurlegt að horfa á töfluna hér í þingsal og ég frábið mér það orðalag eða þá ætlun sem birtist í orðum hæstv. utanríkisráðherra um að í því felist einhver fyrirsláttur að ætlast til þess að það sé farið að lögum. Hér á ég við sveitarstjórnarlög, sem voru samþykkt í þessum þingsal, um samskipti og samráð ríkis og sveitarfélaga sem gera einfaldlega ráð fyrir því að þegar fyrirséð er að kostnaður hljótist af lagafrumvörpum sé hann metinn í samráði við sveitarfélögin. Það var ekki gert og í því felst að mínu viti brot á lögunum. Í tilraun til að bæta úr þessari slæmu stöðu, sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á og er að spilla fyrir þessu annars góða máli, lögðum við fram þessa breytingartillögu sem meiri hlutinn hefur hafnað og það er dapurlegt að sjá. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)