157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[12:05]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Við í Framsókn teljum að það sé afar mikilvægt að við áttum okkur á umfangi við gerð þessa samnings og framfylgd hans. Við viljum og teljum að það sé afar mikilvægt að þær aðgerðir sem eru í honum nái að raungerast. En til þess þarf fjármuni. Við teljum afar mikilvægt að það sé endurskoðunarákvæði í þessum lögum til þess einmitt að hægt sé að meta það og mæta þeim sveitarfélögum þar sem kostnaðurinn er. Það er alveg augljóst hjá þeim þjóðum sem hafa lögleitt samninginn að þar fylgja fjármunir með. Það er ákall um það hér frá þingflokki Framsóknar að sveitarfélögum verði mætt svo við getum uppfyllt þá þjónustu sem samningurinn felur í sér. Það er gríðarlega mikilvægt að við séum ekki bara að samþykkja eitthvað og ekkert gerist. Við þurfum að hugsa um allan hópinn og raunverulega láta fjármuni fylgja með aðgerðum.