samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Þótt ég sitji hjá við þessa atkvæðagreiðslu þá styð ég hluta af þessari breytingartillögu sem lýtur að því að færa þennan málefnaflokk aftur undir ráðuneyti mannréttinda. Ég held að það sé einmitt hluti af þessum vandræðagangi við lögfestingu þessa samnings; hann er kominn undir félagsmálaráðuneytið og þar með er gefinn einhver ádráttur um að lögfesting á þessum samningi fjalli sérstaklega um einhverja réttindaávinnslu. Það er ekki um það að ræða við lögfestingu alþjóðasamnings sem þessa. Málaflokkurinn á að mínu mati heima undir ráðuneyti mannréttinda og ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að huga að því að færa málaflokkinn aftur undir ráðuneyti dómsmála.