157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[12:07]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Forseti. Það eru mikil vonbrigði að ekki skuli hafa verið fallist á það að setja inn endurskoðunarákvæði inn í þetta frumvarp. Hver skyldi vera ástæðan fyrir því? Eins og ég sagði hérna áðan þá fara að renna á mig tvær grímur. Hvers vegna er það ekki mögulegt? Hvað er alvarlegt við það? Ef við ætlum að búa til væntingar hérna út í þjóðfélagið um að við þetta breytist allt gagnvart biðlistum og öðru slíku, þá þurfum við að vera undir það búin og við þurfum að sjá fyrir endann á því. Við þurfum að sjá það fyrir okkur og sjá fyrir endann á því hvernig greitt verður fyrir það. Annars erum við að valda mjög miklum vonbrigðum. Sveitarfélögin í landinu eru nú þegar í miklum halla í þessum málaflokki. Frá því hann fluttist yfir árið 2011 hefur ekki nægt fjármagn fylgt með inn til þeirra sem veita þjónustuna. Ég óttast (Forseti hringir.) að þetta séu of miklar væntingar sem er verið að búa til þarna. Ég hef nefnt hér í þessum ræðustóli (Forseti hringir.) áður að það er kannski komið að því að fara að ræða það að flytja málaflokkinn aftur alfarið til ríkisins, (Forseti hringir.) a.m.k. fjárhagslega ábyrgð hans.