stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnu í varnar- og öryggismálum. Þessi stefna er byggð kirfilega á tillögum samráðshóps þingmanna sem ég skipaði fyrr á þessu ári einmitt til þess að fjalla um inntak og áherslur í varnar- og öryggismálum og skilaði hópurinn þessari mikilvægu skýrslu í september. Ég leitaði til allra flokka sem eiga sæti á Alþingi um að tilnefna fulltrúa í samráðshópinn af því að það er að mínu mati gríðarlega mikilvægt að skapa breiða samstöðu um varnar- og öryggismál. Við erum að fjalla um öryggi Íslands. Við erum að fjalla um öryggi okkar Íslendinga. Grunnþættir stefnu í öryggis- og varnarmálum mega að mínu mati ekki verða að pólitísku bitbeini og það er tækifæri núna. Við þurfum stöðugleika, kjölfestu, stefnu og síðan aðgerðir sem ég vil vinna áfram í samvinnu þvert á flokka og sem lifir lengur heldur en ein ríkisstjórn. Það eru miklir hagsmunir í húfi fyrir okkur og þess vegna skipaði ég samráðshópinn. Allir flokkar brugðust skjótt og vel við og tilnefndu algjörlega framúrskarandi fólk til vinnunnar. Það var unnið hratt og skýrslunni skilað í september og það er mikilvægt, eins og ég segi, að um grundvallarmálefni á borð við öryggi þjóðarinnar og varnir hennar ríki sem allra breiðust sátt. Ég vil sérstaklega þakka öllum þingmönnum úr öllum flokkum sem komu að þessari vinnu, sem er að mínu mati góður vitnisburður um það hvernig við getum unnið hér í þessum sal og er til mikils sóma fyrir okkur öll.
Til undirstrika þetta víðtæka samráð og opna samráð vil ég nefna að áður en ég fór með málið, þingsályktunartillöguna eða drögin að henni fyrir ríkisstjórn þá funduðum við með hópnum sem skilaði henni af sér og þau komu með einhverjar viðbótartillögur sem að sjálfsögðu var tekið tillit til. Ég undirstrika að þótt einn flokkur, Miðflokkurinn, hafi á lokametrunum dregið sig úr þá var ótrúlega mikilvægt innlegg frá þeim flokki sem og öllum öðrum og ég vona að við náum samstöðu um næstu skref.
Virðulegur forseti. Samkvæmt lögum fer utanríkisráðherra með yfirstjórn varnarmála og ber ábyrgð á stefnumótun á sviði varnarmála. Í þessari vinnu allri hefur hins vegar alveg ótvírætt verið þétt samvinna, góð samvinna við dómsmálaráðuneytið, enda gegnir það ráðuneyti eins og við vitum stóru og mikilvægu hlutverki, lykilhlutverki þegar kemur að öryggi landsins. Þetta er í fyrsta skipti sem formleg stefna í varnar- og öryggismálum er lögð fram og hún er hluti þeirrar heildarmyndar sem þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland felur í sér og tekur til hernaðarlegra og öryggislegra þátta. Þótt formleg stefna hafi ekki verið lögð fram, eins og við vitum, til þessa þá hafa stjórnvöld í gegnum tíðina unnið eftir skýrum leiðarljósum á sviði varnar- og öryggismála. Við getum nefnt skuldbindingar okkar í tengslum við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafssáttmálann okkar, NATO-sáttmálann, tvíhliða samninga við önnur ríki og síðan þessa grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins. Nálgun íslenskra stjórnvalda í gegnum tíðina varðandi varnar- og öryggismál hefur að sjálfsögðu birst líka í gegnum norðurslóðastefnuna okkar, netöryggisstefnuna, stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu ekki síst, stefnu um almannavarnir og öryggismál og í rauninni líka í reglubundinni skýrslu utanríkisráðherra hverju sinni hér fyrir Alþingi.
Þessi stefna er mótuð á tímum mikillar óvissu á alþjóðavettvangi, því miður er mikil óvissa þar. Allsherjarinnrás og landvinningastríð Rússlands í Úkraínu gjörbreytti öryggisumhverfi í okkar heimshluta líka. Um alla Evrópu á sér núna stað róttækt endurmat vegna þessarar breyttu stöðu og líkt og tekið er fram í skýrslu samráðshópsins þarf Ísland, eins og öll önnur bandalagsríki, að horfast í augu við nýjan veruleika og endurmeta nálgun sína í varnar- og öryggismálum. Bara á nokkrum dögum ákváðu Finnar, eins og við þekkjum, og Svíar að verða aðilar að NATO og Danmörk fór í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslu kviss búmm bang og afnam alla sína fyrirvara innan Evrópusambandsins sem taka til varnar- og öryggismála.
Stefnan sjálf, drögin að henni, byggir á 13 megináherslum. Í fyrsta lagi er horft til alþjóðlegs varnar- og öryggissamstarfs, þ.e. hvernig við tryggjum áfram öryggi okkar og varnir í samvinnu við aðrar þjóðir. Í öðru lagi er horft til þess innlenda varnarviðbúnaðar, þekkingar og getu sem við verðum að byggja upp og efla til að vera í stakk búin til að takast á við þær ytri öryggisáskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Þetta getur líka nýst okkur, eins og oft er talað um, í „dual use“, í borgaralega þætti og við förum yfir það á eftir. Í þriðja lagi er lögð áhersla á þróun á laga- og stofnanaumhverfi varnarmála á Íslandi þannig að nauðsynleg samhæfing, skilvirkni, ábyrgð og ekki síst eftirlit sé tryggt.
Ísland er herlaust land en Ísland er ekki varnarlaust land. Við tryggjum öryggi okkar gagnvart hernaðarlegri hættu með virkri samvinnu við önnur ríki og innan alþjóðastofnana samhliða uppbyggingu á innlendum borgaralegum viðbúnaði og getu. Þetta fer saman.
Í stefnunni er áréttað að meginstoðir varna Íslands séu annars vegar aðildin að NATO, Atlantshafsbandalaginu, og hins vegar varnarsamningurinn dýrmæti frá 1951 við Bandaríkin. Svæðisbundið og tvíhliða samstarf við nágrannaríki og lykilbandamenn innan Atlantshafsbandalagsins styður við og styrkir þessar stoðir og það hefur raunar beinlínis verið kallað eftir því innan NATO, ekki síst af hálfu Bandaríkjamanna. Ég vil því undirstrika að það er engin mótsögn í tvíhliða samstarfi við einstök ríki og við vorum bara um daginn að skrifa undir samstarfssamninga við Finnland annars vegar og Þýskaland hins vegar, svo dæmi séu nefnd, og það er ekki mótsögn í því að gera slíka samninga og virkri þátttöku í svæðisbundnu samstarfi annars vegar og þátttöku í NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin hins vegar. Þvert á móti vinnur þetta allt að sama marki og styrkir hvert annað og styrkir um leið öryggi okkar Íslendinga og varnir.
Það er mikilvægara en nokkru sinni að hlúa markvisst að tengslum Norður-Ameríku og Evrópu og mikilvægara en nokkru sinni fyrr að mínu mati, alla vega síðustu áratugina. Atlantshafstengslin og samstarf sem byggist á varðstöðu um sameiginleg gildi hafa verið grundvöllur friðar, stöðugleika og hagsældar í hartnær átta áratugi, tvímælalaust. Mikilvægi tvíhliða og svæðisbundins varnarsamstarfs fer einnig stöðugt vaxandi, eins og við þekkjum og vitum, og þá sérstaklega varnarsamstarf Norðurlandanna, NORDEFCO. Ég fer einmitt í næstu viku til Helsinki á fund kollega minna þar. Samstarf sameiginlegu viðbragðssveitarinnar, JEF, er gríðarlega mikilvægt og samstarf við helstu lykilbandalög Íslands, ekki síst á norðurslóðum, er dýrmætt að rækta. Styrkur svæðisbundins varnarsamstarfs, bæði í JEF og NORDEFCO, er að þátttökuríkin deila svæðisbundnum öryggisáskorunum, þekkja vel til aðstæðna og þekkja vel til getu hvers annars og geta þannig brugðist hratt við spennuástandi og ýmsum öðrum áskorunum sem við kunnum að standa frammi fyrir á okkar svæði.
Norræna samstarfið á sviði varnarmála hefur aldrei verið eins náið og nú þegar öll Norðurlöndin eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu. Þar eru mikil tækifæri til að þróa sameiginlega getu okkar allra og viðbragð sem um leið styrkir varnir og öryggi ríkjanna, þar með talið Íslands, og um leið sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins. Það er aukinn þungi að færast í umræðu á öllum fundum innan NATO um það að beina sjónum sínum líka að Norður-Atlantshafinu og norðurslóðum af því að það er um raunverulegar ógnir að ræða og við þurfum að standa okkur hvað það varðar.
Samhliða því að við eflum samstarf og tengsl við bandalagsríki okkar er mikilvægt að við uppfyllum okkar varnarskuldbindingar. Við verðum einnig að tryggja að Ísland hafi burði til að meta aðstæður sem koma upp og taka ákvarðanir á eigin forsendum. Aukin innlend geta, þar á meðal nauðsynlegur mannauður, er grunnforsenda þess að Ísland geti unnið að eigin vörnum á eigin forsendum, lagt sjálfstætt mat á varnaraðgerðir og viðbúnað og tekið upplýstar ákvarðanir um öryggi og varnir landsins, auðvitað í samráði og samvinnu við bandamenn en þetta er geta sem við þurfum að koma okkur upp.
Við þurfum að auka getu íslenskra stjórnvalda til að greina hugsanlega ógn af hálfu erlendra ríkja eins og umferð sjófara, flugumferð, netárásir, njósnir eða aðrar fjandsamlegar aðgerðir. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna margvíslegra fjölþáttaógna sem við stöndum frammi fyrir nú þegar þar sem beinlínis er skákað í skjóli leyndar. Við þurfum að styrkja borgaralegan viðbúnað og getu, ekki síst getu innlendra viðbragðsaðila, embættis ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar og CERT-IS netöryggissveitarinnar. Sú vinna er hafin og má nefna vinnu í tengslum við dróna, eftirlit og varnir og eflingu netöryggissveitarinnar. Netöryggi snertir okkur öll, heimilin, fyrirtækin og stjórnvöld. Þess vegna erum við nú þegar að stórefla netöryggissveitina okkar með bættu eftirliti og vöktun á íslenska netumdæminu.
Bandalagsríki okkar leggja sífellt ríkari áherslu á áfallaþol samfélaga sem órofa hluta af vörnum og öryggi ríkja. Við búum að öflugu almannavarnakerfi og viðbragðsgetu sem við erum að sjálfsögðu stolt af. Við þurfum að hlúa að og styrkja það enn frekar þannig að almannavarnakerfið búi yfir fullnægjandi mannafla, þekkingu og sveigjanleika til að takast á við hvers kyns áföll sem ógna eða kunna að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi eða eignum. Þessu til stuðnings þarf að styrkja og styðja við samfélagslega innviði, svo sem sýnilega almenna löggæslu.
Innan NATO hafa verið lögð fram sjö grunnviðmið um áfallaþol sem ríkin hafa sammælst um að leiða. Dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra hafa tekið höndum saman um að meta áfallaþol íslensks samfélags með hliðsjón af þessum grunnviðmiðum NATO. Sú vinna fer að sjálfsögðu fram í nánu samstarfi við önnur ráðuneyti, stofnanir og einkaaðila.
Þau verkefni sem fram undan eru kalla, eins og ég sagði áðan, á aukinn mannauð og meginforsenda þess að hægt verði til framtíðar að byggja upp nauðsynlegan mannauð og getu á sviði varnar- og öryggismála er að tryggja að í landinu verði til reynsla og sérfræðiþekking á þessu sviði. Taka þarf upp samstarf við háskóla, stofnanir og fyrirtæki í tengslum við rannsóknir og þróun.
Virðulegur forseti. Öll bandalagsríki okkar hafa stóraukið fjárfestingar í varnar- og öryggismálum í ljósi þeirra ógna sem eru í umhverfi okkar. Aukin áhersla á varnartengd verkefni og innviði sem gera Íslandi kleift að auka varnarviðbúnað, innlendan borgaralegan viðbúnað og getu og standa við skuldbindingar Íslands gagnvart bandalagsríkjunum kalla óhjákvæmilega á auknar og stigvaxandi fjárveitingar. Á leiðtogafundi NATO í Haag í júní ríkti samstaða meðal bandalagsríkja um mikilvægi stórfelldrar uppbyggingar varnarviðbúnaðar og aukin útgjöld til varnarmála, sérstaklega til að mæta vaxandi hernaðarógn frá Rússlandi. Bandalagsríkin skuldbundu sig til að útgjöld til varnarmála yrðu að lágmarki 5% af vergri landsframleiðslu. Annars vegar var ákveðið að 3,5% af vergri landsframleiðslu yrði varið til varnarmála en skilgreiningin á því hvað félli undir þann hluta hefur haldist óbreytt frá því sem stuðst er við í dag. Hins vegar er 1,5% af vergri landsframleiðslu varið til varnartengdra verkefna, svo sem vegna innviða og eflingar almannavarna og áfallaþols sem styður við og eykur varnargetu okkar.
Það hefur ekki verið horft til Íslands þegar kemur að hefðbundnum útgjöldum til varnarmála, enda er Ísland ekki með her. Landfræðileg staða okkar, vaxandi þátttaka og sýnilegra framlag til sameiginlegra varna á síðustu árum hefur skipt sköpum og viðhaldið þeim skilningi á framlagi Íslands. Ísland hefur því verið undanskilið í skýrslum og samantektum um framlög til varnarmála hjá NATO en það er síður en svo undanskilið kröfunni um að öll bandalagsríki veiti meira fjármagn til eigin og sameiginlegra varna. Í ljósi breyttrar stöðu í heiminum liggur fyrir að Ísland, líkt og allar aðrar þjóðir bandalagsins, mun þurfa að uppfylla 1,5% vegna varnartengdra útgjalda sem mun nýtast að sjálfsögðu við uppbyggingu ýmissa þátta innan lands. Það er mikilvægt upp á trúverðugleika Íslands að gera sem bandamanns, að útgjöld sem felld verða undir þessi 1,5% byggist á skýrri forgangsröðun og raunverulegri getu samkvæmt markmiðum NATO, varnaráætlunum og eflingu áfallaþols og innlends borgaralegs viðbúnaðar. Við njótum sameiginlegra öryggisskuldbindinga sem bandalagsríki og verðum jafnframt að leggja okkar af mörkum til sameiginlegs öryggis bandalagsríkjanna á grundvelli þessara gagnkvæmu skuldbindinga.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að öll sú vinna sem þegar er hafin og sem er fram undan og allar þær fjárfestingar sem ráðist er í styrkja íslenskt samfélag og efla innviði sem nýtast ekki aðeins til þess að bregðast við hernaðarlegri ógn heldur einnig í margvíslegum borgaralegum tilgangi. Það erum við að undirstrika líka með þessu. Hvort sem horft er til netvarna, styrkingar Landhelgisgæslunnar, aukinnar löggæslu og landamæraeftirlits eða uppbyggingar hafna, flugvalla eða almannavarna — allt nýtist þetta til að búa til öruggara og betra samfélag fyrir okkur öll. Uppbyggingin sem þörf er á verður heldur ekki aðeins á Keflavíkursvæðinu eða á suðvesturhorninu heldur um land allt.
Á sama tíma og við horfum til eflingar samstarfs við bandamenn og uppbyggingar á innlendri getu verður að tryggja að löggjöf okkar og stofnanakerfi séu í stakk búin til að takast á við hættuástand. Löggjöf um málaflokkinn þarf að vera skýrari og samræmdari og hér er aðkoma Alþingis mikilvæg.
Varnarmálalögin fjalla fyrst og fremst um stjórnsýslu og rekstur varnarmála á friðartímum. Það er lítið fjallað um heimildir, viðbúnað og viðbragð í hættuástandi. Þetta þurfum við að skoða og það er skynsamlegt að horfa til vaxandi verkefna sem stjórnvöld þurfa að sinna, m.a. aukinni greiningarvinnu, áætlanagerð, eflingu áfallaþols, þátttöku í varnaræfingum, netöryggi og netvörnum. Það þarf að efla, skýra og skerpa á lagaheimildum.
Eins og ég gat um, virðulegi forseti, í upphafi (Forseti hringir.) þá fer þessi stefnumótun fram á tímum óvissu í alþjóðamálum þar sem breytingar eru hraðar og oft ófyrirséðar. Eins og fram kemur í mikilvægri skýrslu samráðshópsins verður Ísland, líkt og önnur ríki, að grípa til aðgerða til að standa vörð um öryggi þjóðarinnar (Forseti hringir.) og sameiginlegar varnir aðildarríkja NATO. Það er flókið og margslungið verkefni sem við verðum að axla ábyrgð á í sameiningu.