stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegi forseti. Ég vil bara strax í upphafi beina þakklæti mínu til hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur fyrir þessa vinnu sem hún kom að í samráðshópnum, gríðarlega mikilvæg, ekki síst með tilliti til hennar reynslu og þekkingar í þessum málaflokki en líka fyrir það að þrátt fyrir að hafa verið oft í snúinni stöðu innan þeirrar ríkisstjórnar sem hún var í sem utanríkisráðherra þá hélt hún augunum á boltanum þegar kom að vörnum og öryggi. Við þurfum, það er rétt, að viðhalda þessum stuðningi. Þetta hefur verið hækkun um 20% að jafnaði, á þessu ári fer það líklega með viðbættum stuðningi við Úkraínu upp í 26%. Það er gert ráð fyrir því fram til 2028 í fjármálaáætlun að við munum auka þetta jafnt og þétt. En ég hef áhyggjur, ég ætla bara að segja það strax, varðandi það sem kemur síðan í kjölfarið. En það er hins vegar mikill skilningur innan ríkisstjórnar að við getum ekki komist hjá því að uppfylla okkar varnarskuldbindingar. Við getum ekki alltaf verið, ég ætla ekki endilega að segja afætur í öllu því alþjóðasamstarfi sem við erum í. En við erum búin að fara úr því að vera skilgreind sem þróunarland allt til, hvað var það, 1973 frekar en 1976, yfir í það að vera með ríkustu löndum heims. Við erum ekki að uppfylla 3–3,5% sem eru hrein og klár varnartengd útgjöld og það er skilningur á því að við erum ekki þar, en þá verðum við enn frekar að standast okkar skuldbindingar þegar kemur að 1,5%. Það verður fylgst með okkur. Það verður engin elsku mamma. Bandaríkjamenn eru þegar byrjaðir að benda til að mynda á alls konar hugmyndir frá Ítalíu sem eru ekki raunhæfar og falla ekki undir þetta 1,5%. Hér á Íslandi verður nákvæmlega sama freisting eins og annars staðar, að skófla öllu undir. Það er virðingarvert en það verður að vera gert á forsendu getu innan NATO og þess hvernig við skuldbindum og skilgreinum varnar- og öryggismálin innan þessa 1,5%, þannig að það eru gerðar miklar kröfur til okkar og ég hef enga trú á öðru en að við stöndumst þær kröfur. Við eigum líka að nýta einmitt þennan þverpólitíska samhljóm sem er í því að við ætlum að vera verðugir bandamenn (Forseti hringir.) innan Atlantshafsbandalagsins. Við erum búin að vera það og við ætlum að vera það áfram en við þurfum að gera betur og hluti af því er m.a. að ná þessari (Forseti hringir.) þverpólitísku vinnu til þess að hún haldist lengur, eins og ég gat um áðan, en bara út eitt kjörtímabil. Hún þarf að halda lengur.
(Forseti (BHar): Ég minni bæði hv þingmenn og hæstv. ráðherra á tímamörkin.)