stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegur forseti. Ég vil einfaldlega taka undir allt sem hv. þingmaður sagði, þetta er bara nákvæmlega þannig. Við erum að taka þátt í alþjóðasamstarfi, það eru ákveðin réttindi en það eru líka ákveðnar skyldur sem við öðlumst í gegnum slíkt samstarf. Ef okkur er raunverulega annt um frelsið þá er það nákvæmlega þannig að það kostar og það kostar meira í dag en á síðustu árum og jafnvel áratugum. Það eru ógnir sem steðja að okkur og við þurfum að fjárfesta í okkar eigin öryggi. Ég tel þetta ferli vera rétt að byrja. Ég tel að þessi vinna samráðshópsins sé ávísun á það að það sé komið traust í ferlið sem við getum byggt á. Það er alveg ljóst að það verður auðvitað samvinna þvert á ráðuneyti og það verður faglegt ferli milli ráðuneyta, utanríkisráðuneytis, innviðaráðuneytis og ekki síst dómsmálaráðuneytis, um hvað fellur undir þessi viðmið, m.a. undir 1,5%, hvað það er sem við getum nýtt og byggt upp til að byggja upp okkar öryggi og varnir. Þetta er gríðarlega mikið og þess vegna segi ég við hv. þingmann: Þetta er bara rétt að byrja. Við erum bara rétt að byrja að vinna í þessu og þessi vinna mun ekki eiga sér stað án ykkar. Ég mun leggja mig alla fram til þess að allir flokkar komi að og við náum sameiginlegri niðurstöðu. Við munum hafa ólíka pólitíska nálgun á einhverjum sviðum en ég held og er sannfærð um það að allir þeir flokkar sem komu að þessari vinnu og sitja á Alþingi — við gerum einfaldlega þær kröfur til okkar sjálfra að ná samstöðu um þessa veigamiklu stefnu og ekki bara um stefnuna heldur síðan um aðgerðaáætlun og framkvæmdaplan.
Við getum auðvitað leikið okkur að alls kyns hugmyndum og það er gott að hafa metnað í því. En bara þannig að fólk skilji: Sem dæmi hefur verið nefnt að það eigi að efla Gæsluna. Já, um allt land. Ég sé fyrir mér að við fáum þyrlu á Norðurlandi með áhöfn þar. Það styrkir auðvitað öryggi sjómanna, öryggi landsbyggðarinnar en það styrkir líka varnir okkar. (Forseti hringir.) Það styrkir okkur líka í því að sinna þeirri þjónustu sem við þurfum að sinna, (Forseti hringir.) m.a. þegar erlendir herir eru hér að sinna sínu loftrýmiseftirliti. Við þurfum líka að geta uppfyllt okkar skuldbindingar þegar kemur að því.