stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegi forseti. Mér finnst gott að finna það að Miðflokkurinn er tilbúinn til þess að halda áfram samstarfi á þessu sviði. Ég tel það mikilvægt sem aldrei fyrr að við vinnum saman. Ég ætla ekki að fara út í ástæður þess, sem ég hef vitneskju um, af hverju Miðflokkurinn fór þarna út, alla vega tímabundið. En gott og vel. Ég fagna því að fólk vilji halda áfram í þessu og vera með sínar pælingar og innlegg inn í þetta allt saman.
Heildstæð nálgun í öryggismálum í víðum skilningi var römmuð inn með þjóðaröryggisstefnu. Það er þessi heildstæða nálgun og undir þá regnhlíf fellur ýmislegt. Það eru almannavarnir. Það eru ákveðin öryggismál og til að mynda fjármálaöryggi og fleira sem fer þar undir. Það er stefna í varnar- og öryggismálum. Hún er sértæk og horfir fyrst og fremst til þeirra þátta sem snúa að vörnum og þessum ytri ógnum sem stafa af mannavöldum. Við stöndum svo sannarlega frammi fyrir þeim, og eins því hvernig við þurfum að standa okkur sem þjóð sem stofnaðili að NATO, hvernig við getum staðið við skuldbindingar okkar þar í þeirri breyttu heimsmynd sem við stöndum nú frammi fyrir.
Varnarstefnan myndar órofa heild með þjóðaröryggisstefnunni og öðrum sértækum stefnum á borð við, eins og ég gat um áðan, almannavarnastefnu, netöryggisstefnu, norðurslóðastefnu. Varnar- og öryggisstefnan er einfaldlega hluti af þessari sértæku stefnu. Ég bið fólk bara um að vera ekki feimið við að ræða um varnir og öryggi á þessum tímum. Það hefur verið feimni í gegnum síðustu ríkisstjórn til að mynda, eða síðustu ár og áratugi, við að ræða þetta frekar, líka út frá því sjónarmiði að við erum herlaus. Eins og ég sagði erum við ekki varnarlaus þótt við séum herlaus. (Forseti hringir.) Við verðum að standa við okkar skuldbindingar, þora að ræða hverjar varnarskuldbindingar okkar eru. Það vill svo blessunarlega til að varnarskuldbindingar okkar (Forseti hringir.) ýta líka undir öryggi okkar innan lands, öryggi innviða, (Forseti hringir.) öryggi netsins o.s.frv. Þetta fer saman um að efla varnir og öryggi okkar Íslendinga.
(Forseti (BH): Forseti minnir enn og aftur á ræðutímann, sem er tvær mínútur í þessum andsvaralið.)