157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[12:45]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem er lykilhlutverk okkar í dag er að horfast í augu við þær ógnir sem steðja að okkur í dag. Þær eru aðrar heldur en hafa verið áður. Við þurfum auðvitað að aðlaga okkar stofnanaumgjörð eins og allar aðrar þjóðir eru að gera. Öll ríki eru að aðlaga sig að breyttum aðstæðum og það verðum við Íslendingar líka að gera. Það er ekkert þannig að utanríkis- og varnarmálaráðuneytið ætli að fara og gína yfir þessu öllu. Það er alls ekki þannig. Það dýrmæta og það fallega í þessu fyrirkomulagi okkar hér í dag er að það hefur einmitt verið unnið markvisst þvert á ráðuneyti. Það hefur ekki verið endilega þessi sílóavinnsla. Auðvitað eru sumar stofnanir hræddar um sig og vilja sjálfar fara í landvinninga en við höfum bara, myndi ég segja, 95% ekki unnið þannig. Við erum hins vegar búin að efla varnarmálaskrifstofu ráðuneytisins með því m.a. að CERT-IS er komið þar inn. Fjölþáttaógnir í dag fela stundum í sér hreina og klára hernaðarlega ógn en síðan eru þessir óprúttnu aðilar líka að vinna á gráu svæði eða á öðrum svæðum. Það er því svolítið verið að „blörra“ myndina og við þurfum einfaldlega að vera tilbúin í allar þær fjölþáttaógnir sem við stöndum frammi fyrir. Við þurfum að spyrja okkur að því hver ábyrgð og hlutverk stofnana er á friðartímum. Ég get lýst því yfir hér að ég sé ekki fyrir mér að það verði til einhver ný stofnun. Ég vil hins vegar, og er búin að segja það ítrekað, styrkja gæsluna. Ég vil styrkja netöryggissveitina til þess að standa enn sterkar gagnvart fjölþáttaógnum. Ég vil styrkja ríkislögreglustjóra og ég vil styrkja mannauðinn, greininguna og þekkinguna innan allra stofnana, þar með talið innan okkar ráðuneytis sem einmitt varnartengd verkefni falla undir. Ég finn að það fer stundum í taugarnar á mönnum en bara lögum samkvæmt falla varnartengd verkefni undir utanríkisráðuneytið. (Forseti hringir.) Það er einmitt á okkar ábyrgð að reyna að nýta krafta og byggja upp styrkleika okkar hvar sem þeir eru í kerfinu til þess að standast þær ógnir sem við stöndum núna frammi fyrir og það er ákall (Forseti hringir.) mitt til þingheims, að við stöndum saman í þessu.