stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins út í það sem hann nefndi hérna síðast, sem ég er algerlega sammála, um fælinguna sem felst í því að geta verið sem samfélag sammála um þessi grundvallaratriði og hversu augljóst það er með hvaða hætti óvinveitt ríki og óvinveittir aðilar nota einhvers konar skautun þegar ekki ríkir þessi samstaða til að grafa undan samfélaginu hér, stjórnmálaumræðu o.s.frv. Við sjáum það auðvitað í ríkari mæli annars staðar en ég held að það sé óhætt að segja að við séum ekki ónæm fyrir því heldur. Hvaða hlutverk höfum við sem þingmenn í almennri umræðu í því að reyna að standa vörð um þetta, ekki bara innan þessara veggja heldur bara almennt sem þátttakendur í samtalinu? Hins vegar langar mig að spyrja: Með hvaða hætti getum við lært af þeim löndum sem hafa aðra sögu en við í samtali við fólk sem finnst óþægilegt að ræða þessi mál, sem ég skil vel? Ég leyfi mér að nota þennan vettvang hér til að spyrja hv. þingmann vegna þess að við erum bæði frjálslyndir hægri menn og ég get sagt fyrir mitt leyti að hv. þingmaður mótaði fyrir löngu síðan, fyrir tæpum tveimur áratugum síðan, mína afstöðu til vestrænnar samvinnu og hvers virði það er að passa upp á frelsið og að lönd sem hafa ekki þurft að færa stórkostlegar fórnir eins og við eigum aldrei að taka því sem sjálfgefnum hlut. Hvernig getum við hér á Íslandi átt þetta samtal með uppbyggilegum hætti við fólk sem hefur efasemdir, finnst óþægilegt að tala um þetta og hvaða leiðir telur hv. þingmaður gagnlegar í þeim efnum?