157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[13:18]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur kærlega fyrir hennar spurningar. Stórt er spurt. Í fyrsta lagi myndi ég segja að ein leiðin til að tala um þessi mál sé kannski að segja sögur. Ég get t.d. sagt þær sögur að þegar fólk ræðir öryggis- og varnarmál í mínu gamla heimalandi, Póllandi, þá kemur maður á skrifstofuna og fólk er bara að velta fyrir sér hvar næsta skotvarnarbyrgi er. Hvar mun ég þurfa að fela mig ef til árásar kemur? Sú umræða öll og ógnirnar eru einhvern veginn miklu nær fólki. Ég er ekkert endilega að tala um að við eigum að tala með þeim hætti að reyna að hræða fólk í því að það þurfi á næstu dögum og mánuðum að fela sig í skotvarnarbyrgjum en við eigum samt kannski að reyna að halda því til haga hve heppin við erum, að þegar við tölum um fórnir þá erum við enn fyrst og síðast að tala um fjárhagslegar fórnir. Við erum að tala um að við þurfum hér innan lands að forgangsraða fjárhagslega, setja pening í þennan veg en ekki annan til að geta uppfyllt okkar skuldbindingar, en ekki það að við þurfum að útdeila okkar blóði á vígvöllum einhvers staðar til að verja okkar öryggi og fullvirði.

Mig langar aðeins að segja varðandi þetta sem hv. þingmaður nefndi, varðandi öryggi og ábyrgð umræðunnar. Fyrst og síðast þurfum við m.a. að gera okkur grein fyrir því að sumum af þessum ytri aðilum sem reyna að ala á óróa í samfélaginu er alveg sama um allt nema óróa. Þeir hafa ekkert endilega hugsjónir. Dæmi um hluti sem menn hafa alið á ótta við eru sóttvarnir, bólusetningar, barnavernd. Barnavernd er eitt atriði sem alið hefur verið á ótta við. Það hefur verið kerfisbundið farið í það að reyna að sannfæra íbúa á Norðurlöndum um að barnavernd sé þeim óvinveitt. Það hefur verið rakið til ákveðinna aðila sem hafa reynt að ala á ótta gegn barnavernd til að sannfæra þá um að ríki þeirra vilji þeim ekki vel. Við verðum því að vera meðvituð um þá upplýsingaóreiðu sem er í gangi af hálfu þeirra aðila sem eru þarna úti og vilja sundra okkur.