157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[13:33]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um stefnu í varnar- og öryggismálum sem er unnin upp úr samstarfshópi sem sá sem hér stendur var fulltrúi Framsóknar í. Ég held að það megi segja að vinnan við undirbúning að þessari þingsályktunartillögu, þ.e. í þessum hópi, hafi verið á margan hátt til fyrirmyndar og niðurstaðan sem hér birtist í þingsályktunartillögunni endurspeglar meira og minna, í raun og veru, niðurstöður starfshópsins.

Í stuttu máli væri hægt að segja að varnar- og öryggismál okkar séu heilt yfir í ágætisstandi, sem byggist fyrst og fremst á legu landsins og þeirri staðreynd að við erum stofnaðilar að NATO sem er jú öflugasta varnarbandalag í heimi. Við erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin sem mun ávallt verða okkur ákaflega mikilvægur og við þurfum ekki að hafa stórkostlegar áhyggjur af því að það hverfi vegna þess að við erum í raun fyrsta heimavörn Bandaríkjanna. Ef þau horfa á árásir Rússa hér úr Norðurhafi er Ísland staðurinn til þess að fylgjast með því. Þess vegna er áhugi núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum á bæði Grænlandi og Kanada skiljanlegur. Þriðji þátturinn í þessu er að við þurfum síðan að vera í stakk búin til að njóta ekki eingöngu þessa ávinnings af því að vera stofnaðilar að NATO og ábyrgir þátttakendur í því starfi og með þennan varnarsamning heldur þurfum við líka að taka á okkur þær skyldur sem því fylgja, þ.e. að geta tekið við þeirri aðstoð sem varnarsamningurinn og NATO kallar á. Í fjórða lagi má svo nefna bara annan almennan viðbúnað hér innan lands sem skiptir auðvitað gríðarlegu máli, þ.e. þetta þol fyrir því að geta tekist á við ógnir. Þar erum við með öfluga aðila sem við þurfum að efla enn frekar eins og lögregluna, Landhelgisgæsluna, almannavarnir, Slysavarnafélagið Landsbjörg, sveitarfélögin, frjáls félagasamtök, bara að samfélagið í heild sinni geti staðist þær ógnir og haft þol fyrir því að fara í gegnum erfiða tíma.

Ég skal hins vegar viðurkenna hér strax í upphafi að ég var efasemdarmaður um að fara inn í þessa vinnu. Það stafaði af því að yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og hæstv. utanríkisráðherra voru í upphafi með þeim hætti að hér væri að koma fram algerlega eitthvað nýtt, varnar- og öryggisstefna sem byggðist meira og minna á einhverju samtali við Evrópu og Evrópusambandið. Þess vegna þótti mér eiginlega þær áherslur sem komu fram í máli hv. þm. Dags B. Eggertssonar, sem var prýðileg ræða að mörgu leyti, um að Evrópa væri þar alltaf talin á undan NATO og þetta væri svo mikilvægt — sú áhersla er ekki sú upplifun sem ég hafði af þessari vinnu. Í gegnum vinnu starfshópsins, m.a. í frábærri heimsókn sem við fórum til Brussel, hittum NATO og Evrópusambandið, skýrðist þessi mynd svo skýrt, að staða okkar í heild sinni, eins og ég fór yfir í upphafi, er býsna góð. Við þurfum hins vegar að efla okkur til að vera betri bandamenn í NATO, betri bandamenn sem uppfylla varnarsamninginn við Bandaríkin svo þessir aðilar geti komið og aðstoðað okkur vegna þess að við erum herlaus þjóð, við erum friðsöm þjóð. Við erum í 18 ár búin að vera talin öruggasta og friðsamasta þjóð í heimi og við eigum að halda áfram að tala með þeim hætti.

Niðurstaðan í þessari heimsókn úti var sú að þetta er kjarninn. Þegar við töluðum við Evrópusambandið þá sögðu þau nei. Ef það yrði ráðist á okkur, er hægt að hringja í ykkur? Nei, við hringjum í NATO. Mér fannst þetta vera svo mikill kjarni í þessari vinnu okkar, að þarna lægi þetta algerlega skýrt fyrir að ef við erum að tala um varnar- og öryggismál, vörn við ógnum á Íslandi, er það aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin. Síðan bætist auðvitað það sem kemur hér fram í — og þess vegna er auðvitað stefnunni raðað svona upp, í fyrsta lagi að auka þátttöku í starfi og verkefnum Atlantshafsbandalagsins, sem er meginvettvangur varnarsamvinnu, og í öðru lagi varnarsamstarfi við Bandaríkin, síðan númer þrjú að styrkja þátttöku í svæðisbundnu samstarfi um varnar- og öryggismál, áherslu á norðurslóðir, norrænt varnarsamstarf, samstarf innan Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar sem kölluð er JEF, sem er samstarf við Breta, Hollendinga, Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin, það er gríðarlega mikilvægt því að í mörgum tilvikum koma ógnirnar ekki sem einhver árás á Ísland heldur einhverjar ógnir, hvort sem þær eru netógnir eða ögrun eða eitthvað slíkt, og þá getur skipt máli að geta gripið til minni aðgerða heldur en að hringja í NATO og segja að það sé ráðist á okkur. Mér fannst þetta skýrast svolítið í okkar vinnu.

Auðvitað er síðan í mörgum öðrum köflum sem við erum að fjalla um fjallað meira um yfirborð. Það þarf meiri vinnu en það sem mér finnst vera gott við þetta, og styð þess vegna bæði þessa vinnu og er tilbúinn að taka þátt í henni áfram, er annars vegar að hún er þverpólitísk. Það skiptir máli að við séum sammála um það hvernig við stöndum að varnar- og öryggismálum. Annað sem mér finnst skipta máli, og kemur reyndar fram hérna í innganginum, er að við erum með þjóðaröryggisstefnu sem dekkar stærri myndina. Þetta er ein stoðin undir þjóðaröryggisstefnuna, varnar- og öryggisstefnan, og hérna er hún listuð upp. Auðvitað mun skipta miklu máli, þegar kemur meira kjöt á beinin um alls konar hluti sem eru aftar í þessari stefnu, hvernig við ætlum að tryggja getu innan lands, mannauð, áætlanir, byggja varnarmannvirki og slíkt og hvernig við uppfyllum skuldbindingar okkar, hvernig við ætlum að auka og stigauka fjárveitingar til verkefna á næstu árum, hvernig við eflum áfallaþol íslenska samfélagsins, hvernig við aukum greiningargetuna og upplýsingamiðlun um áskoranir og ógnir og hvernig við getum stuðlað að fjárfestingum, uppbyggingu og nýsköpun á sviði varnar- og öryggismála eða þjálfun, kennslu og rannsóknum á sviði varnar- og öryggismála. Allt þetta mun koma fram þegar einhver aðgerðaáætlun lítur dagsins ljós og það eru settir fjármunir í hlutina. Þá förum við að sjá hlutina í skýrara samhengi.

Það er líka mikilvægt að horfa til þess að við þurfum að fara yfir löggjöfina. Það er til að mynda, tel ég, mikilvægt að við förum og skoðum það með opin augu hvernig við tökum ákvarðanir ef eitthvað gerist, hver tekur ákvörðun. Hver er aðkoma þingsins? Hvernig er það sett saman í lagalegt samhengi eins og staðan er í dag, sem ég held að sé ekki og við þurfum að bæta? Við þurfum alveg klárlega að taka umræðuna um stofnanaumgjörðina. Ég er ekki viss um að við séum öll nákvæmlega sammála um hvert á að stefna þar. Ég held að það þurfi að ræða það miklu betur og setja á laggirnar ólíkar sviðsmyndir.

Svo má auðvitað nefna hluti sem klárlega vantar og ég hef nú talað nokkrum sinnum fyrir því hér úr þessum ræðustól að það skortir lagaumgjörð, til að mynda það sem hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson var að fjalla hérna um áðan, þegar hann er ungur bæjarstjóri úti á landi og það er mikil ásókn erlendra aðila í alls konar, að kaupa og byggja. Þá vantar okkur löggjöf um rýni á erlendum fjárfestingum. Það bara vantar og það er brestur á því. Nú er að verða liðið heilt ár frá því þessi ríkisstjórn tók við. Það var til frumvarp sem hefði verið hægt að keyra hér í gegn. Ríkisstjórnin hefði getað sett sín fingraför á það og keyrt það hraðar í gegn. Þetta er ekki gott, þetta er ágalli og ég bendi á að þetta ætti að vera eitt af því sem við ættum að vera að leggja megináherslu á.

En það að taka þessa stefnu hér til umfjöllunar finnst mér vera jákvætt. Mér finnst mikilvægt að við höldum þverpólitískri sýn á þessa stóru mynd. Mér finnst líka mikilvægt að við drögum úr þessum yfirlýsingum um að það séu einhverjir aðrir en NATO, tvíhliða varnarsamningurinn við Bandaríkin, samstarf við aðrar þjóðir og að sjálfsögðu tölum við pólitískt við sem flesta aðila en búumst ekki við því að varnir og öryggi Íslendinga breytist eitthvað frá þessum kjarna sem eru hornsteinarnir og ég tek undir með þeim sem hafa sagt það.