157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[13:44]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa ræðu. Ég er hjartanlega sammála kjarnanum í ræðu hans og reyndar vil ég bara þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur verið. Ég heyri það og skynja að það er mikill samhljómur meðal þingmanna þegar kemur að megináherslum í öryggis- og varnarmálum. Þingið er þannig samsett núna en það er kannski auðveldara að ná samstöðu um alls konar hluti en hefur oft verið áður og slík samstaða skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli. Ég tek svolítið undir það sem hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á hér áðan, að skilaboðin út á við frá Alþingi Íslendinga eru sterk þegar við segjum: Það er hægt að fá okkur til að takast á um alls konar hluti en við erum hins vegar algjörlega að tala einni röddu þegar kemur að öryggis- og varnarmálum.

Hvað varðar það sem kom fram hjá hv. þingmanni hér áðan höfum við komið því þannig fyrir að í varnar- og öryggismálum þjóðarinnar eru hornsteinarnir NATO og svo auðvitað þessi tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin. Síðan er talað um það að það eigi að vera góð og öflug samvinna og samstarf ríkja, m.a. við ríki í Evrópu og svo er Evrópusambandið líka nefnt þarna og hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta.

Ég er að tala til okkar allra þó að auðvitað sé það þannig að við erum ekki sammála um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Ég held að við séum sammála um það að varnar- og öryggismál okkar hvíli á þessum tveimur meginstoðum, sem eru varnarsamningurinn og aðildin að NATO. Getum við þó ekki einhvern veginn sammælst um að láta ágreining okkar um aðild að Evrópusambandinu vera í ákveðinni hillu og kannski ekki trufla þessa umræðu hér, þ.e. svo ég lýsi þeirri skoðun minni persónulega að aðild að Evrópusambandinu sé ekki forsenda fyrir einu eða neinu í þessu hryggjarstykki í okkar varnar- og öryggisstefnu? Mig langar bara að beina því til hv. þingmanns hvort við getum ekki bara tekið þetta á þeim nótum. Evrópusambandið er eitt, það er þarna. Við þurfum samstarf við það og samtal algerlega óháð því hvort við göngum þangað inn í framtíðinni eða ekki, bara að við förum ekki að búa til ágreining um öryggis- og varnarmálin vegna þess að skoðanir okkar eru skiptar um Evrópusambandið.