157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[13:49]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég áréttaði svolítið þá skoðun mína, bara persónulega, að það sé gott að við getum náð samstöðu um þessi mál og látið ágreining okkar um mögulega aðild að Evrópusambandinu ekki trufla þá vinnu. Þessi umræða er auðvitað á fleygiferð meðal ríkja Evrópu, meðal ríkja NATO og auðvitað innan Evrópusambandsins líka og við fylgjumst með því. Við þurfum hins vegar að eiga gott og öflugt samstarf, bæði við Evrópusambandið, ríki innan Evrópusambandsins og öll aðildarríki NATO, bara að útvíkka það eins og hægt er. Eitt af því sem kemur fram í þessu, og ég hyggst koma nánar að á eftir, finnst mér vera svolítið brýnt og mikilvægt. Það er hér atriði sem er orðað þannig, með leyfi forseta:

„Að efla þjálfun, kennslu og rannsóknir á sviði varnar- og öryggismála og bæta virka upplýsingamiðlun um málaflokkinn.“

Mér finnst við stundum að ósekju vera í svolítilli vörn gagnvart almenningi vegna þess að það er eðlilega mjög inngróið í okkar þjóðarsál að við séum friðelskandi þjóð, að við séum herlaus þjóð og að við eigum ekki að vera að skipta okkur af einhverju ógnarástandi úti í heimi. Við þekkjum auðvitað öll þá umræðu. Andstaðan við aðild Íslands að NATO á sínum tíma var auðvitað að hluta til byggð á þessu. Við vitum það líka að það getur verið misflókið bæði fyrir flokka og þingmenn, eftir því t.d. hvar á landinu þeir búa, að ræða þessi mál. Því langar mig að spyrja hv. þingmann, bæði sem formann Framsóknarflokksins og kannski líka sem reynslumikinn landsbyggðarþingmann hér á þingi: Hvað getum við gert til að gera okkur auðveldara að útskýra fyrir fólki að þegar við erum að tala um að auka við fjármuni í varnar- og öryggismál séum við í raun líka að tala um auknar fjárveitingar í lykilinnviði sem ég held að við séum flest sammála um að séu nauðsynlegar? (Forseti hringir.) Hvernig getum við dýpkað umræðuna til að ná fólki almennt á sömu blaðsíðu um þetta?