stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegur forseti. Það er alveg rétt að í gegnum árin — örugglega að einhverju leyti vegna þess að stjórnmálaflokkarnir spönnuðu áður breiðara spektrúm af skoðunum þegar kom að varnar- og öryggismálum og þeirri staðreynd að við erum herlaus og friðelskandi þjóð — hefur verið svolítil feimni við að ræða þessi mál. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við ræðum þau á grundvelli staðreynda. Því tek ég undir með hv. þingmanni að við eigum ekki að blanda við þau einhverjum hugmyndum og löngunum núverandi ríkisstjórnar eða einstakra þingmanna hennar í það að ganga í Evrópusambandið. Það hefur bara ekkert með varnar- og öryggismál að gera, bara ekki neitt. Það er alveg óþarfi að búa til þá umræðu í samfélaginu í tengslum við varnar- og öryggismál. Ég held að langflestir séu sammála því að við þurfum að uppfylla skyldur okkar. Það eru ekki bara réttindi sem felast í því að búa langt frá heimsins vígaslóð eins og við sannarlega gerum heldur eru það skyldur sem koma af því að vera aðilar að NATO og vera með varnarsamning og gera síðan samstarfssamninga um svæðisbundið samstarf eins og ég nefndi hér áðan, innan þessa JEF-samstarfs. Ákveðnar skyldur kalla á fólk sem kallar á þjálfun og kallar á fjárfestingar. Við eigum að ræða það algerlega opinskátt að þetta er til þess gert að við getum verið góðir þátttakendur í því að vakta þetta stóra svæði sem er í kringum okkur, öllum heiminum til heilla, en um leið vera hluti af því að verja okkur þegar til þess kemur. Við eigum að forðast þetta tal um að utanríkisráðuneytið skipti um nafn og heiti utanríkis- og stríðsmálaráðuneytið. Við eigum að forðast það. Þetta er utanríkis- og varnarmálaráðuneytið. (Forseti hringir.) Við eigum bara að halda okkur við þær staðreyndir en ekki tala um alls konar langanir einstakra um að ganga í einhver önnur sambönd. Það eru ekki varnar- og öryggismál, frú forseti.