stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir ágæta ræðu. Ég tek undir það sem hefur komið fram í umræðunni í dag og líka hjá hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, þingflokksformanni Viðreisnar, að þegar við ræðum varnar- og öryggismál þá einbeitum við okkur að varnar- og öryggismálum og blöndum þeim ekki í aðra hluti. Mér fannst hv. þingmaður koma svolítið inn á það hér, ég veit svo sem ekki hvaða ummæli eða annað, hef ekki haft tíma til að átta mig nákvæmlega á því sem hún var að fara út í, en hins vegar hefur sá sem hér stendur talað um það í nokkur ár — og það er líka vegna reynslu af NATO-þinginu og vegna samtala við ráðherra, þingmenn í Finnlandi, sænska sendiherra og fleiri um þessi mál — að þegar vitnað er í Lissabon-sáttmálann, 42. gr., 7. lið, sem er um þessa varnarstefnu sem kemur inn 2009, þá sögðu Finnar í aðdraganda aðildar þeirra að NATO haustið 2022 og utanríkisráðherra Finna sagði: Lissabon-sáttmálinn, 42. gr., 7. liður, verndar ekki Finnland fyrir árás. Það er lykilatriði. Við munum sækja um aðild að NATO. Það kemur sá dagur.
Það verður bara að hafa í huga hvernig þessi kerfi hafa verið, fjármögnun þeirra og annað. Það er hins vegar gott að Evrópa, Evrópusambandið, sé að reyna að gera sem mest núna í að byggja sig upp í þessu málum. En það má ekki blanda íslenskri pólitík og því sem snýr að umræðu um Evrópusambandið inn í þennan þátt, sem eru varnar- og öryggismálin. Þar verðum við að reyna að halda samstöðunni vegna þess að við erum að ræða hér um varnar- og öryggismál Íslendinga og það eru algjör grundvallarmál og hafa verið grundvallarmál í allri lýðveldissögunni. Svo getum við farið vonandi síðar í dag í þá þætti.