stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu ábendingu og ég hefði viljað heyra þessar raddir með öflugri hætti í sumar vegna þess að það var enginn af hálfu ríkisstjórnarinnar sem hafði uppi nokkur einustu ummæli um að innganga í ESB væri til þess fallin að tryggja varnir, við ættum að gera það til að tryggja varnir, eins og ég tel að hv. þingmaður hafi orðað það. Það var ekki nokkurn tímann leiðarstefið eða skilaboðin sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar voru með í þessari heimsókn Ursulu von der Leyen, sem var mikilvæg og hún var upphafið að öflugu tvíhliða samstarfi. Þá er það alla vega komið og bókað hér í þessari umræðu í dag. Ég fagna áherslubreytingu af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. Ég tel einsýnt að þetta muni ekki flækjast mikið meira fyrir okkur, alla vega ekki af þeirra hálfu hvað þetta varðar. En mér fannst ég hins vegar þurfa að minnast á þetta í tengslum við fyrirliggjandi stefnu vegna þess að hér voru á einhverjum tímapunkti uppi efasemdir um að tvíhliða samstarf gæti samræmst skyldum okkar samkvæmt tvíhliða samningi við Bandaríkin og veru okkar í NATO. Þetta þurfti bara að leiðrétta. En ég held að það dyljist engum og ég veit að hv. þingmaður er mjög djúpskyggn á þau tækifæri sem liggja í alþjóðasamstarfi sem við eigum eftir að fara í og eigum fyrir höndum og ég vil bara þakka fyrir þessa áréttingu vegna þess að hún er mikilvæg.